Page 1 of 8

Vara við spjallverja hér á kraftinum! - Könnun

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:00
by JaguarXJ6
Sælir kæru spjallverjar,

Ég ætla bara að vara ykkur við honum Uvels hér á kraftinum, ég veit að ég er ekki sá fyrsti :evil: ,
en hann bauðst til að redda mér heddi í bílinn hjá mér og sagði mér að hann þyrfti að fá peningin
fyrst, en útskýringin fyrir því sagði hann að hann þyrfti að borga gaurnum á partasölunni úti fyrst svo
hann myndi senda þetta af stað :oops: ,
síðan bíð ég og fæ alltaf að pakkin komi ekki í dag en kemur sennilega á mánudag, og að hann hafi gleymt
að skrifa eitthvað og hin og þessi afsökun, síðan fór ég að taka eftir um þarsíðustu helgi að hann var
að selja verkfæri úr skúrnum þar sem hann hafði afstöðu, þá kveikti þá á perunni,
þetta var á Sunnudagskvöldi btw,
ég hringdi í hann og hann svaraði ekki, og síðan á mánudeginum fór ég í próf(er í skóla og hef ekki efni á að vera
rændur), hringdi í hann eftir próf ekkert svar, síðan keyrði ég upp í skúr allt horfið úr bílskúrnum og gaurinn
bara stunginn af, tók líka startkapla með sér sem ég á(kostuðu 7000þús kall í N1), síðan hitti ég strákin
sem var að leigja með honum skúr, og hann skuldaði honum líka leigju og tók verkfæri sem hann átti með
sér,
gaurinn hafði semsagt bara stungið af á Sunnudagskvöldinu, og var ég ekkert lítið pirraður yfir þessu og borgaði ég
honum 50þ kall fyrir heddið sem enn hefur ekki látið sjá sig :twisted: ,
en ég hafði þekkt hann síðan í Október og hafði hann verið bara hinn "fínasti náungi" og trúði ég því ekki að
hann myndi stinga mig í bakið :? , núna svarar hann ekki síma né sms, sennilega bara sáttur með sinn gróða þar sem
ég hafði nú tekið eftir því að þessi maður hafði ekki unnið í allan þann tíma sem ég hef þekkt hann, og
var honum ekki sagt upp veit ég, þiggur þar af auki bara atvinnuleysibætur(ekki að segja að menn þurfi ekki atvinnuleysis-
bætur ef þeim er sagt upp).

En þetta er mín reynsla af þessum manni, en ég átti nú samt nokkur heiðarleg viðskipti við hann en það afsakar ekki þessa
framkomu :x

Kveðja

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:05
by JoeJoe
fara í heimsókn með kúbein?

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:08
by Einarsss
skil ekki hvað menn eru endalaust að díla við þennan gaur..

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:10
by JaguarXJ6
einarsss wrote:skil ekki hvað menn eru endalaust að díla við þennan gaur..

já, hef séð það er búið að kommenta um hann helling, vildi bara segja mína reynslu,
veit að ég er ekki fyrsti maðurinn sem lendi í honum

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:36
by BMWaff
Ef maðurinn er ennþá á landinu er þetta ekki endilega tapað... Það hlítur aðvera hægt að hafa uppá honum og "spjalla" við hann

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:41
by JaguarXJ6
BMWaff wrote:Ef maðurinn er ennþá á landinu er þetta ekki endilega tapað... Það hlítur aðvera hægt að hafa uppá honum og "spjalla" við hann

:idea: hmm..., ætla ekkert að hvað ég hef á prjónunum hér á spjallinu :roll: , en takk fyrir ábendinguna

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Mon 11. May 2009 22:51
by ValliB
Svona framkoma er náttúrulega fyrir neðan allar hellur, minnir um margt á nígeríusvindlara

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 00:15
by Aron Andrew
Er ekki kominn tími á að siga lögreglunni á þetta fífl??

Hann er búinn að svíkja fleiri, bæði hér á landi sem og erlendis.

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 00:30
by ///M
Hvernig væri nú að byrja á því að banna aulan á þessu spjalli...

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 00:36
by maxel
Aron Andrew wrote:Er ekki kominn tími á að siga lögreglunni á þetta fífl??

Hann er búinn að svíkja fleiri, bæði hér á landi sem og erlendis.

Afhverju hefur enginn gert það enþá?

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 00:42
by Birgir Sig
maxel wrote:
Aron Andrew wrote:Er ekki kominn tími á að siga lögreglunni á þetta fífl??

Hann er búinn að svíkja fleiri, bæði hér á landi sem og erlendis.

Afhverju hefur enginn gert það enþá?



x2

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 01:09
by DABBI SIG
Verð að taka undir með mönnum hér.
Sem betur fer verslaði ég bara fyrir mjög litla upphæð í gegnum hann en það er bara eitt stórt klúður að eiga viðskipti við hann. Svarar aldrei í síma, einstaka sinnum sms og þá bara til að segja manni reikningsnúmerið sitt og upphæðina. Ekki hægt að fá neinar haldgóðar upplýsingar um hann.

En síðast þegar ég vissi var hann á Egilsstöðum, en er hann núna í bænum?
Þetta er alveg spurning um að menn taki sig til og hafi uppá honum og fái úrlausn sinna mála. (Þá er ég ekki að tala um með kúbeini eða álíka heldur að reyna fá manninn til að tala við mann og skýra út hina ýmsu hluti)

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 08:43
by xripton
ætti svosem ekki að vera erfitt að hafa uppá manninnum eða einfaldlega siga lögreglunni á hann

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 08:47
by Zatz
birgir_sig wrote:
maxel wrote:
Aron Andrew wrote:Er ekki kominn tími á að siga lögreglunni á þetta fífl??

Hann er búinn að svíkja fleiri, bæði hér á landi sem og erlendis.

Afhverju hefur enginn gert það enþá?



x2



x3

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

PostPosted: Tue 12. May 2009 10:56
by JaguarXJ6
xripton wrote:ætti svosem ekki að vera erfitt að hafa uppá manninnum eða einfaldlega siga lögreglunni á hann


Já það væri held ég sniðugt að fara allar löglegar leiðir fyrst áður en hann fær heimsókn, en það er svosum ekkert ólöglegt við banka upp á og spjalla aðeins við kauða, en flott þessi viðbrögð hjá öllum, mér finnst að maðurinn getur kanski fengið fyrirgefningu
ef að hann verður heiðarlegur og borgar öllum þeim sem hann hefur svikið :)