Page 1 of 1

Nú er bara að fylgjast með...

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 09:44
by hlynurst
... því sagan segir að þessi hafi oltið. :?

Sel það samt ekki dýrara en ég stal því.

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 10:07
by Gunni
Meinarru s.s. að hann hafi oltið bara núna nýlega ?

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 12:41
by hlynurst
Svo segir sagan... :-k

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 14:39
by bjahja
ÆÆ, vonandi að það hafi enginn slasast :?

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 16:46
by BMWaff
bjahja wrote:ÆÆ, vonandi að það hafi enginn slasast :?


Amm það er fyrir öllu... Það eru til fullt af svona bílum

PostPosted: Sat 13. Dec 2003 22:40
by hlynurst
En MJÖG lítið af þessu bílum sem eru með blæju... heyrði að hann hafi verið að taka framúr og misst stjórn á bílnum.

PostPosted: Sun 14. Dec 2003 04:06
by Jss
hlynurst wrote:En MJÖG lítið af þessu bílum sem eru með blæju... heyrði að hann hafi verið að taka framúr og misst stjórn á bílnum.


Leiðinlegt að heyra en er sammála bjahja, vonandi að enginn hafi slasast, mun erfiðara að redda nýju "svona" fólki heldur en bílnum.

Síðan vonum við náttúrulega að hann hafi ekkert oltið. ;)

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 10:43
by atli823
Veit einhver hver á svona bíl með fullt af límmiðum á frambrettinu, persónulega finnst mér þetta forljótt, ég sá þann bíl á Hellu um daginn

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 10:56
by bebecar
Það er nú ekkert grín að lenda í veltu á blæjubíl! Vonandi hefur spoilerinn komið að gagni sem veltigrind :oops:

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 11:14
by iar
atli823 wrote:Veit einhver hver á svona bíl með fullt af límmiðum á frambrettinu, persónulega finnst mér þetta forljótt, ég sá þann bíl á Hellu um daginn


Það er líklega sami bíll og myndin er af í fyrsta póstinu. Það var allavega komið innkaupakerruhandfang aftan á skottlokið og límmiðar á hliðarnar eftir samkomuna þar sem myndin var tekin.

Eiginlega synd að mínu mati því bíllinn var virkilega laglegur fyrir breytingarnar.

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 11:15
by Jss
bebecar wrote:Það er nú ekkert grín að lenda í veltu á blæjubíl! Vonandi hefur spoilerinn komið að gagni sem veltigrind :oops:


Þess vegna eru bitar sem skjótast upp við veltu til að vernda farþega :D en aldrei að vita nema spoilerinn hjálpi til (það eina góða sem spoilerinn gæti gert ;))

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 11:16
by iar
bebecar wrote:Það er nú ekkert grín að lenda í veltu á blæjubíl! Vonandi hefur spoilerinn komið að gagni sem veltigrind :oops:


Eða kannski var það spoilerinn sem olli veltunni. Hann gæti hafa tekið svo mikinn vind á sig. ;-)

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 13:08
by fart
Djöfull eruð þið grimmir. Eigum við ekki að halda aðeins í okkur þangið til að við fáum staðfest að engin hafi slasast.

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 13:21
by bebecar
Satt hjá þér - auðvitað vona það allir. En ef einhver hefði slasast þá hefðum við nú heyrt það í fréttum...

PS, þessvegna notaði ég :oops: kallinn áðan því ég skammaðist mín fyrir kommentið. :oops:

PostPosted: Mon 15. Dec 2003 21:07
by Moni
En bíllinn er ekkert smá laglegur á myndinni sem fylgir þessu pósti :!: