Page 1 of 2

Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 21:33
by gardara
Það er kominn tími á að skipta út einhverjum fóðringum í bílnum hjá mér og nú er stóra spurningin, oem eða poly... Er búinn að leita aðeins hér á spjallinu og menn virðast vera með voða misjafnar skoðanir á poly fóðringum.
Er einhver svaka munur?
Eru poly það harðar að maður verður marinn á rassgatinu eftir smá keyrslu?
Hvernig er verðmunur? og fara þessar fóðringar mis vel með bílinn?

Ef það er einhver teljandi munur þá gæti ég hugsað mér að fórna smá þægindum (ég er jú á þristi og því ekki að sækjast eftir þægindum).

Væri fínt að heyra einhver álit á þessu

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 21:49
by Alpina
Bæði eiga rétt á sér,, spurning um hversu stífann og eða hastann bíl þú vilt hafa

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 21:56
by gardara
Væri fínt að hafa hann nokkuð stífann... Þótt þetta sé daily driver þá reynir maður nú oft að nýta beygjur þegar þær eru við höndina.
Annars já er þetta daily driver og ekki einhver track only græja, er eitthvað vit í að nota poly á daily driver? Eða eru menn sem runna poly á daily driverum að gera það því það er svo kúl og race en hafa í raun ekkert við það að gera?

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:05
by Alpina
Held að flestir hérna af yngri kynslóðinni myndu mæla með Póly,, ekki ég

en POLY á alveg rétt á sér í mörgum tilfella,, og sumar fóðringar ættirðu tvímælalaust að setja póly í

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:06
by gunnar
Það er svolítið erfitt að segja bara af eða á með poly.

Poly getur hentað á sumum stöðum á bílnum hjá þér ef þú vilt enn hafa hann sem daily og á sumum stöðum ekki.

Mótorpúðar og gírkassapúðar gæti ég ímyndað mér að myndi valda töluverðum víbring í bílnum hjá þér ef þú værir með poly þar.

Ég er með eitthvað af poly fóðringum hjá mér. En ég ætla ekki að polyvæða bílinn hjá mér allann. Hugsa minn vagn ekki bara sem trackgræju og vill því ekki að hann hristi afturendann á mér í sundur þegar maður er að keyra annars staðar en á brautinni.

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:08
by Alpina
Að framan mæli ég eindregið með ... TREEHOUSERACING,,,,, bara gott stuff

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:10
by gunnar
Alpina wrote:Að framan mæli ég eindregið með ... TREEHOUSERACING,,,,, bara gott stuff


$$$$$$

Að mínu mati fávissu dýrt fyrir lítið og ómerkilegt stykki..

En eins og þú bendir á, eðal upgrade hins vegar. Ég lagði þó ekki í þetta. Keypti mér bara OEM E30 M3 fóðringu.

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:13
by Alpina
Það er solid poly í E30 M3 position (( treehouse stuffið ))

vissi ekki að þetta hefði hækkað svo mikið

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 22:27
by maxel
gardara wrote:Það er kominn tími á að skipta út einhverjum fóðringum í bílnum hjá mér og nú er stóra spurningin, oem eða poly... Er búinn að leita aðeins hér á spjallinu og menn virðast vera með voða misjafnar skoðanir á poly fóðringum.
Er einhver svaka munur?
Eru poly það harðar að maður verður marinn á rassgatinu eftir smá keyrslu?
Hvernig er verðmunur? og fara þessar fóðringar mis vel með bílinn?

Ef það er einhver teljandi munur þá gæti ég hugsað mér að fórna smá þægindum (ég er jú á þristi og því ekki að sækjast eftir þægindum).

Væri fínt að heyra einhver álit á þessu

Nei það er bara ALLIR VS ALPINA :lol:

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sat 11. Apr 2009 23:04
by Dóri-
ég gæti ekki hugsað mér að hafa poly, ég verð bara pirraður við víbring og hasta bíla. :evil:
Myndi samt ekki hika við að versla þetta í brautarbíl.

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 01:43
by Aron Andrew
Ég er með poly í öllu hjá mér, bjóst við meiri mun við að setja þetta í subframeið.

Held þú finnir ekkert mikið fyrir þessu svo lengi sem þú ert ekki með mega stífa fjöðrun.

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 03:24
by arnibjorn
Ég er nánast bara með poly í mínum bíl. Það er fínt enda nota ég bílinn minn alveg ótrúlega lítið, ég vil bara að minn bíll virki á leiðina uppá braut og á meðan ég er að taka rönn uppá braut. :)

Fyrir þig Garðar þá held ég að poly sé klárlega ekki málið. Bara kaupa original fóðringar í bílinn þinn og þá held ég að þú sért góður.

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 04:12
by birkire
dunno en ef þú ætlar að skipta um ALLT.. eins og ég ætla að gera einn daginn þá er powerflex poly pakki ódýrari en OEM og poly endist lengur

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 04:39
by IvanAnders
Personal opinion:
venjulegur akstur, smá spól og stöku trackday: OEM
Track only: KANNSKI Poly´s

Finnst poly vera agalega ofmetið, og þvílík tískubóla!

Eins og Sveinbjörn Svezel orðaði það einhvern tíma (minnir að það hafi verið hann)
"Ég þarf ekki að finna hvort ég keyrði yfir 5kall eða 10kall"

:)

Re: Fóðringar poly vs. gúmmí

PostPosted: Sun 12. Apr 2009 06:38
by fart
Ég mæli með Poly í E36 fyrir track use.