Page 1 of 1

Elísabet tryggingarþjónusta, hver er reynslan?

PostPosted: Fri 06. Mar 2009 15:13
by JoeJoe
Sælir, mig langaði bara að vita ef einhver hérna hefur tryggt hjá Elísabet og hver reynslan þeirra sé að tryggja hjá Elísabet.

Re: Elísabet tryggingarþjónusta, hver er reynslan?

PostPosted: Fri 06. Mar 2009 15:15
by ValliFudd
Stefnan hjá þeim er að láta viðauka fyrir akstursíþróttir kosta 50 þúsund krónur per event per dag.. Þeir drógu það til baka tímabundið sagði yfirmaðurinn þar við mig, en ég veit ekki hvort þeir ætla í þann pakka aftur. Allavega myndi ég ekki þora að tryggja þar ef þú hefur áhuga á mótorsporti..

Re: Elísabet tryggingarþjónusta, hver er reynslan?

PostPosted: Fri 06. Mar 2009 19:36
by Lindemann
plús það að bíllinn verður að vera drullumáttlaus til að þú fáir að tryggja hjá þeim.........

Re: Elísabet tryggingarþjónusta, hver er reynslan?

PostPosted: Sat 07. Mar 2009 10:58
by Einsii
Svo eru þeir líka dýrir ef maður á annaðborð ætlar ekki að vera settur á hausinn ef það kemur svo til að maður þurfi að nota þessa tryggingu.
Skil ekki afhverju menn ættu að vilja tryggja sig og þurfa svo að borga "sektir" ef maður lendir í smá óhappi og svo er lægsta eigináhætta minnir mig rúm 70k.

Ég get allavega tryggt báða bílana mína annarstaðar fyrir minni pening og þetta "ódýra" tryggingafélag ætlaði að rukka mig fyrir 330 bílinn miðað við þokkalega tryggingu.