Page 1 of 8

Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:33
by iar
Sælt veri fólkið!

Spjallið hefur verið uppfært úr phpBB2 í phpBB3. Útlitið breytist þó nokkuð við það og margir nýjir möguleikar bætast við.

Ég mæli með að fólk skoði sig aðeins um sjái hvað nýja útgáfan hefur upp á að bjóða. Ef einhverjar spurningar endilega spyrjið.

Hér fyrir neðan eru nefndir nokkrir nýjir möguleikar en er alls ekki tæmandi listi! Enn og aftur hvet ég fólk til að skoða sig um og spyrja ef einhverjar spurningar vakna. Þessi þráður er líka tilvalinn fyrir fólk til að prófa sig áfram ef það vill.

- Hægt að vitna í marga í einu
- Meiri möguleikar varðandi kannanir
- Friends / Foes - hægt að sleppa því að sýna pósta frá ákveðnum aðilum
- Bókamerki, fólk getur sett áhugaverða þræði í bookmarks hjá sér á spjallinu
- Einkaskilaboð: hægt að senda til margra í einu, búa til möppur, setja filtera o.fl.

Vona að fólk fái ekki mikið sjokk en annars verður boðið upp á áfallahjálp á næstu samkomu! :-)

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:35
by Jón Ragnar
Góður Ingimar!

gaman að sjá að fólk vaknar snemma á laugardögum og græjar hluti fyrir okkur hina 8)

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:39
by Einarsss
:clap:

Það var lagið ... ánægður með ykkur! 8)

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:39
by Lilja
Það var mikið :D Vonandi það verði ekki margir :bawl: :bawl:

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:39
by arnibjorn
Vóvóvó maður þarf að stunda spjallið GRIMMT núna til að venjast þessu fljótt :lol:

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:39
by Mánisnær
Ég fékk sjokk!!

En þetta venst.

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:43
by Axel Jóhann
Ég ætla fagna þessu með bjór í kvöld!

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:45
by Thrullerinn
Nauuu !! þetta er rosalegt, mjög flott við fyrstu sýn!

Ingimar, you´re da man!!! 8)

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:45
by ValliFudd
Ingimar! Veistu hvað ég er búinn ýta oft á refresh síðasta klukkutímann! :lol:

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:48
by Einsii
Þetta er kúl.. Ég er svona stýrikerfanörd. hef svo gaman að öllu svona.. enda er ég að keira þrjár tölvur heima og ein á xp, hin á Vista og síðasta á Seven :P

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:49
by Mánisnær
Mér fynnst vanta fítusinn þar sem hægt er að vera með músabendilinn yfir nafn á þræði og séð fyrstu setningar þráðarinns.

Það er það eina sem l2c spjallkerfið hefur yfir gamla bmwkrafts kerfið.

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:52
by Axel Jóhann
ÉG VIL FÁ GAMLA AFTUR!¨ :argh:

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:53
by Einsii
Afhverju eru google og yahoo botar logaðir inn á spjallið ?

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:54
by Mánisnær
Hver er annars munurinn á þessu og á l2c? Er þetta einhver nýrri útgáfa?

Re: Spjallið uppfært!

PostPosted: Sat 21. Feb 2009 12:55
by ValliFudd
Þeir voru það væntanlega alltaf, bara sáust ekki þarna í gamla kerfinu :) Þeir eru nú líklega ekki loggaðir inn, bara að skanna alla posta.. Ameríkaninn vill vita hvað við erum að tala um... USA SUCKS .. gáum hvort þeir finni þetta :lol: