Page 1 of 2

HALLÓ HALLÓ HALLÓ

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:08
by saemi
Er ekki möguleiki, að þið yndislegu spjallverjar sem eruð að setja inn innlegg hér á spjallborðið, setjið í fyrirsögnina hvað um ræðir?

Ég er búinn að taka núna 3 efstu innleggin á kraftinn og breyta fyrirsögninni. Ég hef ekki komist lengra á þessum 2 mínútum sem ég hef verið á kraftinum í dag. Það er virkileg ótillitsemi við aðra að tilgreina ekki hvað er verið að óska eftir eða tala um.

T.D.

"vantar" er ömurleg fyrirsögn á því að viðkomandi vanti afturljós á E36. Af hverju er ekki sett "vantar afturljós á E36" í fyrirsögnina?

"veit einhver" er ömurleg fyrirsögn á því hvað það kostar sirka í dag að fara með bílinn í smurningu?

"kveikju hamar" er ömurleg fyrirsögn á því að einhvern vanti kveikju hamar fyrir m20b25 á lítið

Gerið það nú fyrir okkur hin að setja í fyrirsögnina það sem málið snýst um. Þetta er ekki ruslakista heldur spjallborð. Það er flett upp gömlum þráðum hér og það verða allir þræðir með sömu fyrirsögnina með þessum hætti. Þá verður ómögulegt með góðu móti að finna hluti hér og eða fylgjast með.

Fyrir utan hvað þetta sparar fólki tíma við að þurfa ekki að skoða innihald þráðs sem maður veit ekki hver fyrirsögnin er á.

Það er búið að minnast á þetta áður hér. En ég veit að hér er fullt af nýju fólki sem hefur kannski ekki séð þann póst. Plís, hugsið aðeins málið og vandið betur það sem sett er út á kraftinn.

Kveðja,
Bílakertasníkir.

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:16
by íbbi_
er alveg sammála þessu, og vona að ég sjálfur sé ekki of slæmur

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:22
by zazou
Halelúja 8)

Þetta er bara dónaskapur að hafa ekki viðeigandi titil. Ég reyni að forðast það að opna þannig innlegg.

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:35
by ValliB
Það er rétt, þetta er mjög leiðinlegt, miklu skemmtilegra að klikka á þræði sem segja hvað mönnum vantar, ekki bara "vantar"

Þá veit maður ekkert hvað maður er að klikka á, gæti alveg eins verið http://www.lemonparty.org eða eitthvað þvíumlíkt

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:50
by arni800
vá sorry maður :lol:

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 18:52
by Axel Jóhann
Já ég er sammála þessu, hundleiðinlegt að þurfa opna alla þræði til að vita um hvað þeir eru.

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 19:35
by Kristjan
Ég er nokkuð sammála þessu, ég mun fylgja þessu eftir nema þegar ég er að plata Alpina til að opna einhverja dörtí þræði múhaha

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 19:46
by Djofullinn
Djöfull er ég sammála þessu :)
Hata asnalegar fyrirsagnir

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:01
by Kristjan
Halló halló halló er samt ekki alveg skýr skilaboð hehe

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:02
by birkire
Kristjan wrote:Ég er nokkuð sammála þessu, ég mun fylgja þessu eftir nema þegar ég er að plata Alpina til að opna einhverja dörtí þræði múhaha


Hahaha, legg til að kristján verði sá eini sem megi skrifa innihaldslausa titla

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:09
by arnibjorn
birkire wrote:
Kristjan wrote:Ég er nokkuð sammála þessu, ég mun fylgja þessu eftir nema þegar ég er að plata Alpina til að opna einhverja dörtí þræði múhaha


Hahaha, legg til að kristján verði sá eini sem megi skrifa innihaldslausa titla


Ég legg til að óþarfa "of" dónalegir þræðir verði bara bannaðir.

Þetta er bílaspjall, ef menn vilja pósta nasty síðum eiga þeir bara að segja þær á b2 eða eitthvað :)

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:11
by Alpina
arnibjorn wrote:
Ég legg til að óþarfa "of" dónalegir þræðir verði bara bannaðir.

Þetta er bílaspjall, ef menn vilja pósta nasty síðum eiga þeir bara að segja þær á b2 eða eitthvað :)


Þarna segir þú nokkuð af viti,, styð þetta heilshugar

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:24
by Angelic0-
Kristjan wrote:Ég er nokkuð sammála þessu, ég mun fylgja þessu eftir nema þegar ég er að plata Alpina til að opna einhverja dörtí þræði múhaha


x2 :!:

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:26
by saemi
x3

PostPosted: Tue 09. Dec 2008 20:34
by Djofullinn
saemi wrote:x3
Ert þú mikið að plata Alpina með dörtí þráðum? :lol: