Page 1 of 1

Bmw 323I stolið !!!!! Fundinn

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:08
by -323I-
Bílnum mínum var stolið fyrir 3 vikum síðan í Reykjavík

Lýsing:
Bmw 323I sedan, (E-36) árg 1995 silfurlitaður
Skráningarnúmer: VY 501

Takk fyrir

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:31
by Eggert
Sedan, coupe eða touring?

Skildirðu lyklana eftir í bílnum?

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:37
by -323I-
Þetta er sedan

Nei, það var brotist inn í íbúðina mína og lyklinum stolið þar og svo var bíllin tekinn.

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:41
by Eggert
Ok, vonandi finnst bíllinn óskemmdur.

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:46
by -323I-
Já takk fyrir það,
ég ætla rétt að vona að bíllinn finnist óskemdur

PostPosted: Sun 25. May 2008 15:47
by Axel Jóhann
Leiðinlegt að heyra, þetta er góður bíll.



Svona lýtur bíllinn út.
Image

PostPosted: Sun 25. May 2008 17:29
by Alpina
Ótrúleg bíræfni

PostPosted: Sun 25. May 2008 18:30
by Danni
Ræflar og ekkert annað sem þurfa að vera að stela eignum annara.

Ég verð alltaf mjög svartsýnn um framtíð flottra bíla þegar ég heyri svona, sérstaklega þegar það er bíll líkt og þessi sem getur nýst í alla Sedan E36 á landinu :(

Ég horfi nánast alltaf eftir E36 og ég skal fylgjast með hvort ég sé þennan!

Fundinn

PostPosted: Sat 14. Jun 2008 16:51
by -323I-
Takk kærlaga fyrir svörinn

Bíllinn er kominn í leitirnar :D :D :D

Re: Fundinn

PostPosted: Sat 14. Jun 2008 17:11
by Eggert
-323I- wrote:Takk kærlaga fyrir svörinn

Bíllinn er kominn í leitirnar :D :D :D


Var hann í sama ástandi? Búið að keyra hann mikið? Þjófurinn fundinn?

PostPosted: Sat 14. Jun 2008 18:05
by -323I-
Ja... hann er nú avleg í þokkalegu standi ef svo má segja,
það vantar að vísu frontinn á útvarpið, radarvarinn er horfinn
og svo af einhverjum ástæðum var búið að rífa annað innra brettið af
að framan og henda því í skottið, mig grunar að það hafi verið vegna
þess að dekkið rekst aðeins í, í botn beyjgu sökum þess að hann er
lækkaður, kannski það hafi pirrað einhvern.

En annars er ég bara mjög feginn að fá hann aftur, og ef maður lítur á björtu hliðarnar
þá var útvarpið rusl hvort sem er og radarvarinn gamall
og ekkert mál að henda brettinu undir aftur . . .
já og ég fékk lykilinn aftur svo að ég sparaði mér þar um 25 þús.kall :wink:

PostPosted: Sat 14. Jun 2008 18:29
by Eggert
Gott mál. :wink:

PostPosted: Sun 15. Jun 2008 20:21
by Alpina
Hvernig getur bíllinn horfið í svona langann tíma ??

PostPosted: Sun 15. Jun 2008 20:28
by Stebbimj
Alpina wrote:Hvernig getur bíllinn horfið í svona langann tíma ??


einmitt það sem ég hugsaði :hmm: