by Þórir » Fri 03. Oct 2003 17:14
Ég er sko hjartanlega sammála því að þetta sé algert snilldar spjall. Vona bara að deilur sem hafa verið hér leiði ekki til sama ástands og varir á kvartmila.is spjallinu en það spjall hófst hrikalega vel en eftir leiðinda skrif fýlupúka, vandræðaseggja og óþroskaðra barna fór allt í hund og kött. Nú er varla hægt að fara inn á kvartmílu spjallið enda flest skemmtilega fólkið hætt að skrifa þar.
Gott spjall, endilega að halda áfram á sama róli og passa upp á að þetta fari ekki illa.
Kveðja.