Page 1 of 8
B&L Sportbílasýning á föstudagskvöldið

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:14
by B&L Verslun
Sælir félagar,
B&L langar að bjóða ykkur á Sportbílasýningu á föstudagskvöldið frá kl.18-20.
Þeir sem hafa áhuga á að kíkja á okkur er bennt á að nálgast BOÐSKORT, sem gildir fyrir 2, hjá Inga í verslun B&L. Fyrstir koma fystir fá.
Lokaður kokteill til að fagna komu nýjustu tækniundrana frá BMW.
Glæsilegar veitingar - Seiðandi tónlist
Einstakir bílar - Kynning á tækniþróun BMW
Sýndir verða:
BMW 120d Coupé
BMW M3
BMW 320i Coupé ///M
BMW 320i Sedan ///M
BMW520i Sedan ///M
BMW X5 4.8i ///M
BMW 325i Coupé
BMW 750i
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja B&L

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:18
by DabbiHan
djöfull kann ég að meta B&L
ekki mörg fyrirtæki held ég sem leita uppi svona áhugamannaspjall og síður


Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:21
by Aron Andrew
Uss, maður verður nú að kíkja á þetta


Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:27
by Dóri-
BMW 230i

er það eitthvað nýtt eða ?

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:35
by JonHrafn
Nd2Spd wrote:BMW 230i

er það eitthvað nýtt eða ?
Var einmitt að pæla í þessu, á þetta ekki bara að vera 320i?

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:37
by Aron Andrew

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:38
by JonHrafn
Vá þessi 2series þarf að venjast.

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:48
by Stebbimj
Anskotinn hafi það er að vinna á föstudaginn
Takið myndir fyrir mig


Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:53
by gunnar
Já endilega ef einhver væri til að smella myndum þá væri það snilld fyrir okkur sem búum út í sveit


Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:54
by mattiorn
gunnar wrote:Já endilega ef einhver væri til að smella myndum þá væri það snilld fyrir okkur sem búum í höfuðstað norðurlands :?

Posted:
Wed 05. Mar 2008 12:56
by jens
Vill þakka B&L fyrir höfðinglegt boð, flottir.

Posted:
Wed 05. Mar 2008 13:14
by Dóri-
Aron Andrew wrote:

Afhverju heitir þetta 1 series coupe á bmw.com og .de ?
Edit: á þetta að vera eitthvað séríslenskt eins og hurricane

Posted:
Wed 05. Mar 2008 13:27
by Bjössi
þetta á að vera 320 í stað 230

Posted:
Wed 05. Mar 2008 15:10
by Steinieini
mattiorn wrote:gunnar wrote:Já endilega ef einhver væri til að smella myndum þá væri það snilld fyrir okkur sem búum í S****skurðinum :?

Posted:
Wed 05. Mar 2008 15:30
by B&L Verslun
Vil vekja athygli á því að þeir sem vilja koma á föstudagskvöldið VERÐA að nálgast BOÐSMIÐA í Verslun B&L hjá Inga.
Þeir sem koma ekki með boðsmiða á föstudagskvöldið fá ekki inngöngu.