Page 1 of 1

Mögulegar flutningsleiðir frá Hollandi?

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 00:50
by srr
Sælir,

Ég var að finna náunga í Hollandi sem á handa mér MtechI kit á E28.
Spurningin mín er einföld.....

Hvernig kem ég þessu heim til Íslands á sem hagkvæmastan máta?
Eimskip? Samskip? Flug? Póstur?

Þetta myndi vera framstuðari, afturstuðari, hliðarsílsar og mögulega
mtech hjólbogarnir líka (veit ekki með bogana samt, ekki búinn að ákveða mig með þá).

Allar hugmyndir vel þegnar.
Hraðinn á flutningsmátanum breytir mig litlu, þetta færi ekki á bílinn fyr en með vorinu.

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 02:17
by Danni
Ég veit nú ekki mikið um kostnaðinn á svona en ég veit að Icelandair Cargo flýgur reglulega frá Liege Airport sem er í Belgíu sem er beint fyrir neðan Holland og reyndar fljúga þeir til Brussels líka sem er líka í Hollandi. Svo fljúga þeir farþegavélum til Amsterdam daglega minnir mig og það er oft sett cargo í farþegavélar þegar það er pláss.

...

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 07:27
by JonFreyr
Bíða eftir tilboðum frá Icelandair.....setja draslið í smokk og flytja þetta sjálfur. Smyrja vel.

Annars bara IcelandairCargo beina leið frá LGG eða Amsterdam, það er reyndar ekki gefins en nokkuð örugg þjónusta. Vera með pappíra í lagi fyrir tollinn :)

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 08:13
by arnibjorn
Bara láta hann pakka þessu vel inn og senda þetta á Samskip í Rotterdam :)

Kostar eflaust ekki svo mikið, flutningurinn frá Samskip Rotterdam til Íslands.

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 09:10
by srr
arnibjorn wrote:Bara láta hann pakka þessu vel inn og senda þetta á Samskip í Rotterdam :)

Kostar eflaust ekki svo mikið, flutningurinn frá Samskip Rotterdam til Íslands.

Getur þú tékkað á verðinu fyrir mig, svona ca ?

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 09:14
by arnibjorn
srr wrote:
arnibjorn wrote:Bara láta hann pakka þessu vel inn og senda þetta á Samskip í Rotterdam :)

Kostar eflaust ekki svo mikið, flutningurinn frá Samskip Rotterdam til Íslands.

Getur þú tékkað á verðinu fyrir mig, svona ca ?

Þú þarft þá að finna út hvað þetta er þungt og hvað þetta er í rúmmáli. Þá gæti ég reynt að finna það út fyrir þig ca. :)

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 11:00
by srr
Hvað er standard mál á svona stuðurum?

Má ekki gera ráð fyrir ca:

Stuðarar:
LxBxH
1,5m x 0,5m x 0,5 fyrir báða stuðarana (samkvæmt Sæma þá ætti annar stuðarinn að passa inn í hinn)

Sílsarnir:
2m x 0,2m x 0,2m

Mögulega hægt að láta allt saman og þá 2m x 0,7m x 0,7m ? (kannski betra að hafa gróft mál, 2m x 1m x 1m)

Skot út í loftið algjörlega með málin sko, en þetta hlýtur að vera nokkuð nálægt.

Þyngdin gæti verið hvað....20-30kg?

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 11:25
by JOGA
Hvar er þetta í Hollandi og ætlar hann að skutlast með þetta til flutningsaðila?

Atlantsskip gætu einnig verið góður kostur. Þeir eru frekar Sunnarlega í Hollandi með sína móttöku. Svo eru Samskip og Eimskip væntanlega ágætur kostur líka.

Ég myndi leggja það á mig að hafa samband við nokkur félög og bera saman verð. Einnig gæti verið hagkvæmt að taka þetta með flugi, í það minnsta í lagi að kanna það.

Getur prófað að hafa samband við:

Iceland Air Cargo
TVG Zimsen
Jóna Transport
Eimskip
Samskip
Atlantsskip

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 11:45
by saemi
Danni wrote:reyndar fljúga þeir til Brussels líka sem er líka í Hollandi.


:hmm:

Hvenær fluttu þeir Brussel til Hollands ... :lol:

En svona að þessu slepptu þá held ég að það sé málið að fá þennan gæja til að fara með þetta í afgreiðslu flutningsmiðlunar... eða eimskip/samskipt þarna úti í Hollandi. En þá þarftu ábyggilega að smyrja ágætri þóknun á gæjann ef þú færð hann til þess á annað borð.

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 11:58
by srr
saemi wrote:
Danni wrote:reyndar fljúga þeir til Brussels líka sem er líka í Hollandi.


:hmm:

Hvenær fluttu þeir Brussel til Hollands ... :lol:

En svona að þessu slepptu þá held ég að það sé málið að fá þennan gæja til að fara með þetta í afgreiðslu flutningsmiðlunar... eða eimskip/samskipt þarna úti í Hollandi. En þá þarftu ábyggilega að smyrja ágætri þóknun á gæjann ef þú færð hann til þess á annað borð.

Já, ég kanna hvað hann er til í að gera, þegar ég er búinn að velja flutningsmátann.
Í versta falli borga ég honum 70-100 EUR fyrir að senda þetta innan Hollands.

PostPosted: Tue 15. Jan 2008 16:04
by Aron Fridrik
Danni wrote:Ég veit nú ekki mikið um kostnaðinn á svona en ég veit að Icelandair Cargo flýgur reglulega frá Liege Airport sem er í Belgíu sem er beint fyrir neðan Holland og reyndar fljúga þeir til Brussels líka sem er líka í Hollandi. Svo fljúga þeir farþegavélum til Amsterdam daglega minnir mig og það er oft sett cargo í farþegavélar þegar það er pláss.



:lol:


það er í belgíu :lol: