Page 1 of 4

Tryggingar

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:12
by O.Johnson
Ég var að fá fyrsta greiðsluseðilinn fyrir tryggingu á bimmanum og ég er
ekki alveg að fíla þessar upphæðir.

Sundurliðun greiðslu
Ábyrgðartrygging ökutækis.....................kr. 243.236
Bónus 20%.............................................kr. -48.647
Slysatrygging ökumans og eiganda........kr. 13.801
Iðgjald framrúðutrygging.........................kr. 5.308

Samtals til greiðslu..................................kr. 213.698

Þetta er alveg út í hött. Hvernig í ósköpunum fær Sjóvá Almennar þeð út
að 18 ára gutti sem er í skóla geti borgað svona upphæð með mánaðar
fyrirvara.


Hvað eru þið að borga í tryggingar á ári og hvernig stendur bónusinn ???

Re: Tryggingar

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:21
by SE
Þetta er dýrt. Man ekki hvað ég er að borga í tryggingar af mínum en ég er að borga mun, mun lægra á mínum gamla :D en það er ekki að marka.

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:23
by jth
Hjá hvaða tryggingarfélagi gátu ungir ökumenn setið (stutt) námskeið til að hækka sig um bónusflokk?

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:25
by Gunni
ÁI! you are being ass fucked! þú ættir að vera að borga svona 80-90 max

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:27
by Haffi
LOL :)
Þú ert heppinn miðað við það sem ég átti að vera að borga hjá vís fyrir 320 '97 með 50% bónus!!!!

298.000kr. !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

En ég fór brjálaður uppí VÍS öskraði eins og fáviti og barði í borðið til að leggja áherzlu á orð mín.

Og viti menn Tryggingarnar lækkuðu niður í 130.000 :)

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:31
by SE
jth wrote:Hjá hvaða tryggingarfélagi gátu ungir ökumenn setið (stutt) námskeið til að hækka sig um bónusflokk?


Það er hjá Sjóvá, ég held þú hljótir að geta fengið lækkað töluvert....

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:34
by bebecar
Ég held að ég sé að borga 50 þús - en ekkert kaskó þar og gamall bíll.

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:36
by Raggi M5
Ef ég væri þú myndi ég bara skrifa bílinn á foreldra þína og nýta þér bónusinn hjá þeim. Allavega á meðan þú ert í skóla. Þetta er bara rugl og ekkert annað!

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:39
by Haffi
Ekki allir foreldrar sem leyfa það :)
Búinn að lækka bónusinn einusinni og víst aldrei aftur :(

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:41
by SE
Haffi wrote:Ekki allir foreldrar sem leyfa það :)
Búinn að lækka bónusinn einusinni og víst aldrei aftur :(


hehe.

Ef foreldrar þínir tryggja líka hjá Sjóvá þá skaltu reyna að nota það, fjölskyldan með allar tryggingar hér...... betra boð annarsstaðar..... förum með allar tryggingar annað.......

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:42
by Kull
Talaðu bara við öll tryggingafélögin og fáðu tilboð hjá þeim. Taktu svo bara besta boði.

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 16:43
by Haffi
Nei eru með allt hjá VÍS en ég er með mín viðskipti við TM núna og er að borga lægri tryggingar þar þó svo ég fái alla bónusa og skemmtileg heit + afslátta hjá VÍS .... simple VÍS SUX!!

Og ég held að TM líki bara svona vel við mig :)

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 17:09
by arnib
TM rokkar feitt. :)

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 17:18
by Schulii
ég er að borga 70.000kr á ári en ekkert kaskó.. ég er með 75%bónus

..ég man þegar ég var að skoða reikninginn frá VÍS þegar ég fékk fyrsta reikninginn minn frá þeim fyrir 325ix bílnum. Ég fékk bara sjokk og var bara mjög þakklátur fyrir að vera með allan þennan bónus.. hugsaði einmitt að það gæti ekki verið að þeir myndu rukka nokkurn mann u m 200k+ fyrir að tryggja bílinn sinn...

PostPosted: Tue 02. Sep 2003 17:21
by Schulii
b.t.w þá ertu ekki skyldugur til að kaupa framrúðutryggingu (-5000) :)

...en ef þú ert að borga hana á annað borð þá myndi ég heimta nýja.. ég man hvernig hún var og þegar sólin er lágt á lofti er stórhættulegt að keyra þennan bíl útaf öllum þessum þúsundum af sprungum í rúðunni..