Sælir,
Langaði aðeins að forvitnast um bláan 530d '02 sem er á sölu á Bílalífi, beinskiptur með M fjöðrun og nokkuð skemmtilega spekkaður. Málið er að hann er auglýstur með einhverju tölvukubbstjúni og á að vera 225hp og einhver 490Nm ef ég man rétt.
Veit einhver hvort þetta er Mr. X edition?



