bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

nýtt sölutrix
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=2474
Page 1 of 1

Author:  ta [ Fri 29. Aug 2003 19:54 ]
Post subject:  nýtt sölutrix

rafstýri, sparar bensíneyðslu! doh!
gaman þætti mér að sjá tölur til staðfestingar.
eitt er víst að tilfinning fyrir akstri minnkar.

þarf ekki stærri alternator og jafnvel geymi.
aukin rafmagnsnotkun eykur líka eyðslu, var
það ekki atriði þegar dagljósabúnaður varð skilda.

Author:  Stefan325i [ Sat 30. Aug 2003 19:46 ]
Post subject: 

ég veit ekki en kanski þarf minna rafmagn í rafmagns styrun heldur en í vökvastíri og vökvastíris dælu sem er reimdrifinn og snúinn af vélinni

en nú er ég samt bara að tala út í loftið en það er samt sjaldan sem bílaframleiðendur ljúi að viðskiptavininum, kanski ýkji aðeins :)

Author:  Logi [ Sat 30. Aug 2003 21:24 ]
Post subject: 

Ég hugsa að vökvastýri sé orkufrekara en rafmagnsstýri, mér finnst það allavegana rökrétt....

Author:  Bjarki [ Sun 31. Aug 2003 02:16 ]
Post subject: 

Já rafmagnsstýri á að vera betra m.t.t. orkunotkunar. Alltaf talað um að rafkerfi bíla verði 24V stýrið verði rafdrifið og bílarnir eyða minna.......

Author:  jth [ Sun 31. Aug 2003 04:41 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
Alltaf talað um að rafkerfi bíla verði 24V stýrið verði rafdrifið og bílarnir eyða minna.......


Næsti staðall sem bílaframleiðendur hafa komið sér saman um að styðja er 42 Volt. Ætlunin er að með hærri spennu verði hægt að fækka sem flestum pörtum sem í dag eru drifnir af beltum tengdum vélinni.
(Enn sem komið er verðum við samt að gera ráð f.a.m.k. að alternator sé tengdur vél með belti pg að það breytist ekki).

Ástæðan f.því að hagkvæmara er að knýja sem flest kerfi bílsins áfram með raforku frekar en eldsneyti (lesist: belti tengt í vélina) er sú að aðeins í kringum 30% orkunnar í eldsneyti nýtist í að koma bílnum áfram - afgangurinn tapast í hitageislun og kerfi sem sníkja afl af vélinni (tengd með beltum).
Ljóst er einnig að með hærri spennu verður hægt að notast við grennri víra (lægri straumur), það eitt gæti sparað töluvert af kopar f.framleiðanda.

Reiknað er með að um helmingur bíla verði útbúinn 42V kerfum árið 2010.

Nýji staðallinn er í umsjá MIT, þeir eru með eitthvað af upplýsingum, því miður ekki vel skipulagt á: http://mit42v.mit.edu

Author:  ta [ Fri 05. Sep 2003 18:13 ]
Post subject: 

þakka góð svör. :oops:

live&learn

Author:  Svezel [ Fri 05. Sep 2003 18:28 ]
Post subject: 

Þegar móðubróðir minn var að tjúna badnarísku kaggana í gamla daga þá var vökvastýrið það fyrsta sem fór

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/