Page 1 of 1

X5 - footballers car

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 21:35
by zazou
Af mbl.is
Bíll sem stolið var frá Beckham er nú ráðherrabíll í Makedóníu
Knattspyrnumaðurinn David Beckham varð fyrir því á síðasta ári að BMW X5 bíl hans var stolið af bílastæði nálægt heimili Beckhams í Madríd á Spáni. Nú hefur bíllinn fundist í Makedóníu þar sem hann hefur verið notaður sem ráðherrabíll. Blöð í Makedóníu birtu myndir af bílnum í gær þar sem hann var notaður til að aka Gordönu Jankulovsku, innanríkisráðherra, um götur Skopje.

Talsmaður lögreglunnar í borginni segir, að bíllinn hafi skipt um eigendur 20 sinnum á Spáni áður en hann kom til Makedóníu og ekki sé hægt að sanna með óyggjandi hætti, að um sé að ræða bíl Beckhams.

Svo virðist sem bíllinn hafi verið sendur frá Spáni til Grikklands með skipi og þaðan var honum ekið til Makedóníu. Þar fann lögregla bílinn þegar hún skar upp herör gegn smygli í nóvember. Enginn gerði tilkall til bílsins og því var ákveðið að nota hann sem ráðherrabíl.

„Ef Beckham vill fá bílinn aftur mun ég afhenda honum lyklana sjálf," sagði Jankulovska innanríkisráðherra.

Tveimur BMW X5 bílum hefur verið stolið frá Beckham eftir að hann hóf að leika með liðinu Real Madrid árið 2003.


http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1263333

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 22:27
by Eggert
Hvernig er hægt að stela nýjum X5 nema að hafa kóðaðan lykil? Veit það einhver?

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 23:56
by Kristján Einar
Eggert wrote:Hvernig er hægt að stela nýjum X5 nema að hafa kóðaðan lykil? Veit það einhver?


grunsamlegar pælingar :lol:

PostPosted: Fri 06. Apr 2007 23:59
by KFC
Það er hægt að stela öllu, bara mismikið vesin

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 00:14
by KristjánBMW
KFC wrote:Það er hægt að stela öllu, bara mismikið vesin


true that

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 00:17
by mattiorn
KFC wrote:Það er hægt að stela öllu, bara mismikið vesin


er hægt að stela vaccumi?

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 02:41
by Misdo
ætli beckham kallinn sé einhvað að æsa sig yfir þessu bara smá peningar fyrir honum

Re: X5 - footballers car

PostPosted: Sat 07. Apr 2007 02:48
by Frikki
zazou wrote:Tveimur BMW X5 bílum hefur verið stolið frá Beckham eftir að hann hóf að leika með liðinu Real Madrid árið 2003.


Ekki einu sinni, heldur tvisvar.
:roll: