Halló allir!
Mig langar aðeins að fá ykkar skoðun á því hvað á að gera þegar það gerist að menn setja inn fleiri en eina grein um sama hlutinn.
Það hefur þegar verið tekið á því í "til sölu" dálkinum. Þá hef ég persónulega strokað út þráð númer 2 ef ekki er búið að skrifa inn í hann af öðrum en höfundi. Annars hef ég læst þeim nýja.
Nú hefur þetta smitað út frá sér og fólk er farið að setja inn fleiri en einn póst í t.d. "bílar meðlima".
Hvað á að gera í þessu? Finnst ykkur allt í lagi að hafa fleiri en eina grein um sama bílinn? Hvað á að gera ef annar þráður er settur inn?
Á að láta hann vera óbreyttan? Á að eyða honum út ásamt þeim "kommentum" sem hafa komið inn frá spjallverjum? Eða á bara að læsa honum.
Ég persónulega vil bara sjá einn póst um viðkomandi bíl hjá sama einstaklingi. Mér finnst mjög ruglingslegt og asnalegt að þurfa að leita í mörgum þráðum til að fá sögu bílsins/eiganda.



