Quote:
Ég ætla að gefa mér það að þú hafir ekki verið staddur þarna...
Það virðist vera að fólk telji að um kappakstur hafi verið að ræða þar sem að YT050 var í samfloti með EK422..
Það er varla hægt að kalla það kappakstur 540i vs 530d ?
Nú? Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að hægt sé að tala um kappakstur?
Ég sé bara ekki hvernig í ósköpunum það kemur málinu við hvort þetta hafi verið 540 vs. 530d eða eitthvað allt annað.
Quote:
Lögreglan sagði meirasegja þegar að hún var á vettvangi:
"Þeir hafa ekkert haft stjórn á þessu enda er þetta átta gata.."
Sem sagt ef ég keyri á fulli og löggan tekur mig þá afsaka ég mig bara með því að bíllinn sé með svo stóra og öfluga vél?? Kanntu annan betri?
Einhvern veginn grunar mig að þetta hafi verið kaldhæðni hjá löggunni sem ekki hefur komist alveg til skila...
Quote:
Og mig minnir að það hafi verið Hannes sem að leiðrétti þá og sagði þeim að bíllinn væri Diesel en þá var annað hljóð í þeim.
Og á hvaða hátt kemur þetta málinu við?
Quote:
Þarna var EKKI um kappakstur að ræða! Og það skal vera á hreinu...
Hinsvegar ku vera mögulegt að um of hraðan akstur sé að ræða, einsog ég segi hér að ofan þá get ég ekki dæmt um það því að ég var annars hugi þegar að ég fann bílinn byrja að snúast... fara út á vegöxlina og síðan afturábak ofaní drulluna á milli akgreinanna... og svo fann ég bílinn velta ítrekað og næst man ég eftir mér standandi úti í heiðinni...
Ég ætla að biðja ykkur um að vera ekki að blása upp sögur um einhvern kappakstur því að svo var ekki! Við sóttum 540i bílinn í Hafnarfjörð þar sem að hann var stopp heima hjá móðir Hannsa og við fórum og settum bensín á hann og svo var haldið til Keflavíkur...
Þetta kemur BMWkrafti eða áhugamannafélgum slíkum ekkert við og því finnst mér alveg fáránlegt ef að sú hugmynd hefur komið í kollinn á þér að úthýsa mér og Hannsa fyrir þetta.
Just my 2 cents...
Ekki ætla ég að rífast um hvort þetta hafi verið kappakstur eða ekki, einu upplýsingarnar sem ég hef eru þær sem eru í fjölmiðlunum og skv. þeim þá rannsakar lögreglan hvort um kappakstur hafi verið að ræða og hún gerir það varla að ástæðulausu.