Zyklus wrote:
Quote:
Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurnesjum rannsakar nú hvort bílveltu á Reykjanesbraut í kvöld megi rekja til kappaksturs tveggja BMW bifreiða. Tvær bifreiðar óku á ógnarhraða í átt til Keflavíkur og var annarri þeirra ekið öfugu megin framúr bíl sem ók í sömu átt. Skömmu eftir framúraksturinn fór BMW bifreiðin útaf veginum og yfir tvær akreinar þar sem umferð kom á móti á tvöfaldri Reykjanesbrautinni á Strandarheiði. Bifreiðin hafnaði að lokum á hvolfi úti í móa. Tveir ungir menn sem voru í bílnum voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli þeirra reyndust minniháttar.
Sjónarvottur að slysinu segir að bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða og aðstæður á slysstað benda einnig til þess að svo hafi verið. Bifreiðin sem valt er mikið skemmd, ef ekki ónýt.
Auðvitað gott að enginn slasaðist, en ég bendi á að þeir hefðu getað drepið saklausa vegfarandur með þessum hálfvitaskap sínum.
Vonanadi látið þið ykkur þetta að kenningu verða.
Það eru einmitt svona bílstjórar sem hafa ekkert út í umferðina að gera og það er ekki beint traustvekjandi að vita af þeim þar.
En fólk ætti ekki að vera undrandi á því að BMW-eigendur og bílaklúbbar eins og þessi hafi slæmt orð á sér þegar innan þeirra eru sauðir sem bera enga virðingu fyrir lögum og reglum.
Spurning hvort stjórnendur ættu að gera eitthvað varðandi þá notendur sem vitað er að hafi stundað eða stunda glanna- og ofsaakstur út í umferðinni. Það myndi kannski auka virðingu klúbba eins og þessa að losna við sauðina.
En sem betur fer slasaðist (eða dó) enginn í þetta skiptið, en það er ekki víst að heppninn verði með í för næst.
Vonandi að þeir læri eitthvað á þessu.
Ég ætla að gefa mér það að þú hafir ekki verið staddur þarna...
Það virðist vera að fólk telji að um kappakstur hafi verið að ræða þar sem að YT050 var í samfloti með EK422..
Það er varla hægt að kalla það kappakstur 540i vs 530d ?
Lögreglan sagði meirasegja þegar að hún var á vettvangi:
"Þeir hafa ekkert haft stjórn á þessu enda er þetta átta gata.."
Og mig minnir að það hafi verið Hannes sem að leiðrétti þá og sagði þeim að bíllinn væri Diesel en þá var annað hljóð í þeim.
Þarna var EKKI um kappakstur að ræða! Og það skal vera á hreinu...
Hinsvegar ku vera mögulegt að um of hraðan akstur sé að ræða, einsog ég segi hér að ofan þá get ég ekki dæmt um það því að ég var annars hugi þegar að ég fann bílinn byrja að snúast... fara út á vegöxlina og síðan afturábak ofaní drulluna á milli akgreinanna... og svo fann ég bílinn velta ítrekað og næst man ég eftir mér standandi úti í heiðinni...
Ég ætla að biðja ykkur um að vera ekki að blása upp sögur um einhvern kappakstur því að svo var ekki! Við sóttum 540i bílinn í Hafnarfjörð þar sem að hann var stopp heima hjá móðir Hannsa og við fórum og settum bensín á hann og svo var haldið til Keflavíkur...
Þetta kemur BMWkrafti eða áhugamannafélgum slíkum ekkert við og því finnst mér alveg fáránlegt ef að sú hugmynd hefur komið í kollinn á þér að úthýsa mér og Hannsa fyrir þetta.
Just my 2 cents...