



Propane wrote:Sko ég hef slæma reynslu af Vélalandi. Ég fékk þá til þess að skipta um olíupönnupakkningu á jeppa sem ég átti. Þetta átti að taka 2-3 daga og kosta 30þ kall, en tók þrjár vikur og kostaði 68þ. Bíllinn meiglak olíu eftir þetta (meira en áður) og þegar ég fór þangað aftur sagði verkstjóragölturinn minn mér að það væri ekki séns að hann læki eftir að þeir væru búnir að laga þetta. Eftir mikið þras, lét hann einhvern kíkja á þetta, og þá höfðu þeir gleymt að þétta nokkra bolta, þeir tróðu kítti á boltana og sögðu þá að þetta ætti að vera í lagi (ATH svona kítti þarf 12tíma áður en maður má starta bílnum) og sögðu að ég ætti bara að koma aftur ef þetta væri eitthvað vandamál, ég kom strax aftur og þá kom í ljós að tapinn lak, þeir þéttu hann og hertu. Hann lak samt áfram. Þá komst ég seinna að því að þeir gleymdu að setja nýja sveifarhúspakkdós á hann þegar þeir tóku vélina upp úr. Ég seldi bílinn og nennti ekki að púkka upp á þá lengur.´
ég kýs því frekar að kalla þetta Föndurland en ekki Vélaland.




Users browsing this forum: No registered users and 6 guests