Page 1 of 2

munur á 320 og 325

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:36
by gunni_litli
hver er munurinn á 320 og 325 vinur minn var að kaupa sér bmw og vitum ekki hvort hann er 320 eða 325 hann er allur leðraður ljóst og er geðveikur að innan 6 cyl 110 kw endilega að segja mér þetta

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:36
by gunnar
ef hann er 110 kw þá er hann 320.

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:37
by arnibjorn
Annar er með 2lítra vél og hinn með 2.5 lítra vél.

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:49
by JonHrafn
320 4cyl
325+ 6cyl


HELD ég :þ

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:50
by arnibjorn
JonHrafn wrote:320 4cyl
325+ 6cyl


HELD ég :þ


Rangt. Bæði 6cyl

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:51
by BjarkiHS
JonHrafn wrote:320 4cyl
325+ 6cyl


HELD ég :þ




Neineineineinei.... báðir 6-cyl

318 kemur 4 cyl

nema ég sé að rífast með rassgatinu :oops:

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:55
by Danni
Báðir 6cyl. 320 er ekki 4cyl fyrr en í E90 ef ég hef rétt fyrir mér.

Þetta er pottþétt 320 þar sem 320 er 150hp (110kw) en 325 er 192hp (141kw).


Svo ætti hann líka að sjá það á skráningarskírteinu hvort hann er með því að skoða hversu mikið slagrímið er, hlýtur að vera með skráningarskírteinið fyrst hann fann út 110kw.

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 12:59
by bjahja
Veit hann ekki hvort hann var að kaupa sér 320 eða 325 :-s

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 13:02
by arnibjorn
bjahja wrote:Veit hann ekki hvort hann var að kaupa sér 320 eða 325 :-s


:lol:

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 13:34
by gunni_litli
hann fékk þennan bil á skít og kanil og ekki mikill bimma maður en það kemur en takk takk fyrir svörin þetta er þá 320 hann er með 2.0 vél eða slagrými 1991

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 13:38
by jonthor
Það er nefninlega ótrúlega mikill munur á krafti á þessum bílum, ekki bara í hp heldur í Nm líka. Mjög greinilegur munur í akstri.

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 14:33
by Ingsie
arnibjorn wrote:
bjahja wrote:Veit hann ekki hvort hann var að kaupa sér 320 eða 325 :-s


:lol:


hahahha nákvæmlega! Soldið spes :lol:

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 14:35
by Svessi
Komdu með VIN númerið (bodynúmerið) á bílnum og það er hægt að finna út eins og skot hvaða týpa þetta er af bílnum, árgerð, framleiðsludag og jafnvel aukahluti. Semsagt fæðingarvottorð.

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 14:39
by ///M
testið bara að keyra bílinn. ef hann er grút máttlaus og ömurlegur þá er hann 320 annars ekki :lol:

PostPosted: Fri 02. Feb 2007 15:12
by HPH
320 er líka til 4cyl í E46