Page 1 of 1

ljósabúnaður

PostPosted: Wed 31. Jan 2007 00:50
by siggik1
Hvar er best að kaupa framljós+kastara ?

varað skoða pakka á netinu hjá tb, reiknaði sirka kostaði þetta 53k með afslætti

ef ég kaupi þetta af ebay þá kostar þetta sirka 36k með shipping en þá á eftir að borga toll, sem ég veit ekki hvað er mikið

hvað haldið þið

PostPosted: Wed 31. Jan 2007 01:08
by ömmudriver
Ég hef sjálfur keypt öll mín ljós af TB, hef lent t.d. í ýmsu veseni en vegna þess að TB er á Íslandi þá tók enga stund að kippa því í liðin :wink: En hvað ertu annars að pæla, eru ljósin ónýt eða á að breyta 8)

PostPosted: Wed 31. Jan 2007 10:58
by siggik1
kastararnir eru brotnir og framljósin sjúskuð, ég keypti hliðarljós og afturljós af tb, smá vesen á þeim en ekkert sem ekki er hægt að kippa í lagið

PostPosted: Wed 31. Jan 2007 19:38
by Misdo
hef mikið verið að pæla í að kaupa ný afturljós á minn mín eru orðinn svo sprunginn var að pæla í að panta þetta enn ætli maður endi ekki bara á því að kaupa þetta í TB

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 11:45
by Beggi
minnir alveg 99% að það séu engir tollar af ljósum

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 12:55
by siggik1
hmm, þá var bara kjörið að versla þetta af ebay

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 13:11
by Kull
Ef þetta er að kosta 36 þús með sendingarkostnaði er það um 45 þús hingað komið með vsk. Þá er það bara spurning hvort þú vilt taka áhættuna fyrir 8 þús, getur verið fljótt að borga sig að kaupa hér ef menn lenda í vesini.

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 14:06
by siggik1
vel mælt :)

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 14:08
by Einarsss
Ef það munar bara 8 þúsund ... þá kaupiru þetta hér ... færð þetta vonandi um leið ( ef það þarf ekki að panta ) ábyrgð á vörunni og ekkert vesen


og sleppur við að bíða í 3 vikur eftir að þetta kemur til landsins.

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 14:10
by ///M
einarsss wrote:Ef það munar bara 8 þúsund ... þá kaupiru þetta hér ... færð þetta vonandi um leið ( ef það þarf ekki að panta ) ábyrgð á vörunni og ekkert vesen


og sleppur við að bíða í 3 vikur eftir að þetta kemur til landsins.


ef þetta kemur þá til landsins.. maður getur alltaf lent á einhverjum aula á ebay

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 14:23
by siggik1
segðu, ég er ennþá að bíða eftir afm sem ég pantaði, nennti ekki að bíða og keypti bara af bjarka held ég