Page 1 of 2

vélarþvottur

PostPosted: Sat 27. Jan 2007 21:39
by siggik1
Jæja ætti vonandi að fá skúrinn að láni eftir helgi, og langaði að láta vélarþvo áður en ég fer með hann inn svo ég sjái almennilega ef einhverjir lekar eru osfr, hvar er best að láta gera þannig ?

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 01:03
by gulli
Myndi bara sleppa því að fara með bílinn í vélaþvott.. ég gerði það og stundum er hitamælirinn að detta út.. gerði það ekki áður....

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 13:05
by Hlynzi
Ég veit ekki um neinn stað sem eru betri en aðrir með vélarþvott að gera, ég hef gert þetta við nokkra bíla án vandræða.

Nota bara tjöruhreinsi (svosem túrbósám) og annað sambærilegt, spreyja honum yfir allt, bíð eitthvað smá, og skola það svo af. Svo geri ég þetta aftur en nudda eitthvað með tusku þar sem óhreindin eru verst.

Svo er nokkuð örugglega möst að hafa loftpressu við höndina til að þurka t.d. vatnið sem vill oft leita ofaní götin fyrir kertin og valda leiðindum.

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 13:25
by Djofullinn
Mundu líka að nota kalt vatn en ekki heitt ;)

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 13:27
by siggir
Og forðastu að sprauta á kveikju, kertaþræði og kerti ;)

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 13:50
by Hlynzi
siggir wrote:Og forðastu að sprauta á kveikju, kertaþræði og kerti ;)


Og líka að maður gleymi nú ekki að loka loftinntakinu.

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 14:33
by Bjarkih
Og EKKI nota háþrýstidælu.

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 14:35
by siggir
Bjarkih wrote:Og EKKI nota háþrýstidælu.


Það á nú að vera í lagi ef varlega er farið. Allavega hef ég gert það hingað til og ekkert alvarlegt komið uppá. Það þarf bara að passa ofsalega vel uppá kveikikerfið.

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 15:27
by Einsii
Ég geri þetta alltaf sjálfur og byrja áð a skola hana vel með svo til engum þristíng, Svo sprauta ég mikið af tjöru og olíuhreinsi yfir hana.. bursta verstu staðina með uppþvottabursta, læt það svo liggja í nokkrar mín, svo skola ég mjög vel með köldu aftur og lítinn þristíng.
Svo til að klára þetta þá svampa ég allt þarna ofaní með sápuvatni skola svo einusinni enn og loks þurka alt með vaskaskinni.
Svo er ekki verra að blása með úr öllum götum og setja svo einhverja svertu á plastið. :)

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 15:29
by Einsii
já og ég plasta aldrei neitt.. eða geri einhverjar ráðstafanir nema bara að sprauta ekki mikið yfir þá staði sem eru viðkvæmir, og ég hef bara aldrei lent í vandræðum með það nema á toyota corolla sem ég átti einusinni :puke:

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 17:55
by Alpina
Ef á að nota vatn með afli til hreinsunar mæli ég með að aðilar blási með lofti yfir allt er máli skiptir,, auðveldar ræsingu og minkar líkur á gangtruflunum,,

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 18:17
by Einarsss
OG! hafðu vélina KALDA! :!:

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 19:52
by Tommi Camaro
vissi ekki að það væri til svona mikil spekki yfir vélaþvott

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 20:49
by íbbi_
nei sammálka tomma, ég hef marg toft þvegið vélar með háþrýstidælum, maður spáir bara aðeins í það á hvað maður er að sprauta

PostPosted: Sun 28. Jan 2007 21:18
by Alpina
íbbi_ wrote:nei sammálka tomma, ég hef marg toft þvegið vélar með háþrýstidælum, maður spáir bara aðeins í það á hvað maður er að sprauta


en hve oft er þvegið :roll: :wink: