Þarf álit hjá ykkur
Ég þarf smá hjálp.
Þannig er mál með vexti að ég er að fara að flýja Svíþjóð, það er svo ógeðslega leiðinlegt hérna (plús að maður kemst ekki á kraftssamkomur eða bíladaga
) þannig að ég ætla að flytja heim til Íslands. Vandamálið snýr að mínum ástkæra bíl, ég hringdi í tollinn til að kanna hvað það myndi kosta fyrir mig að taka hann með og fékk þau svör að ég myndi þurfa að borga ca 300 þúsund krónur!!! Mér finnst það frekar mikið þar sem svona bíll fer á mest 450-500 hér úti og minn fer á mun minna. Það nefnilega eru nokkur atriði sem þarf að gera við til að fullnægja smámunaseminni hjá mér, og til að hann verði bara pottþéttur. Það er pakki upp á svona ca 200k. Ef ég sel hann hérna þá þýðir það að ég fæ bara ca. 300k fyrir hann. Svo langar mig eiginlega ekkert að skilja við hann. Svo náttúrulega fær maður ekki 540 á Íslandi fyrir 300k
Allavega þarf ég nú að fara að ákveða hvort ég sel hann eða tek hann með. Hvað mynduð þið gera? Ég snýst í hringi hérna, get ekki ákveðið mig.
Þannig er mál með vexti að ég er að fara að flýja Svíþjóð, það er svo ógeðslega leiðinlegt hérna (plús að maður kemst ekki á kraftssamkomur eða bíladaga