Smá felgupælingar.
Mér finnst miklu meira sport í því að sjá staggered felgur, sem sagt breiðari að aftan, heldur en ekki. En ég hef verið að hugsa, ætla líklega að setja minn á 18" fyrir sumarið en get ekki gert upp við mig hvort maður ætti að fara í breiðari að aftan eða ekki. Þar sem það er eflaust algerlega ónauðsynlegt þar sem 523 er ekki það kraftmikill væri það kannski bara vitleysa?
Ég mundi hiklaust fara í breiðari að aftan á 540 og kraftmeira.
Hvað finnst ykkur, 18" staggered eða ekki á '99 523i?



