Page 1 of 1

Enn að forvitnast um Z3

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 12:58
by Leikmaður
Sælir

Þekkir e-r til koparbrúna Z3 bílsins, var skráður á sölu fyrr á árinu en er væntanlega seldur núna.
Fallegur bíll (eflaust umdeildur litur þó) - með hard top og 2.0 vél...

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:43
by jens
Þessi bíll var upp á Akranesi á undan þeim sem á hann núna. Held að sá hafi verið eigandi nr 2 af bílnum á eftir eldri manni. Bíllinn var fáránlega vel með farinn, þá ekinn innan við 30 þús og blæjan sett upp innan við 5 sinnum, Já það fylgdi honum hardtop. Strákurinn sem átti hann á skaganum tók aldrei á honum.

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:45
by Bjössi
þessi sem átti han fyrst keypti hann nýjan úr umboiðunu árið 2000 og seldi hann svo í fyrra, á þeim tíma keyrði hann bílinn 13 þús. km. og geymdi ´hann inn í bílskúr þess á milli

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:55
by Leikmaður
já akkúrat - við erum a.m.k. að tala um sama bílinn - leit alveg skuggalega út af myndunum að dæma fyrr á þessu ári....minnir meira að segja að það hafi ekki verið sett mjög mikið á hann!

Endilega látið mig vita, ef þið vitið númerið á honum eða hvort hægt sé að ná í skottið á eigandanum (pm ef það breytir e-ju).

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 14:41
by IceDev
Minnir nefnilega að sett hafi verið á hann 2.3-4

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 14:43
by Leikmaður
IceDev wrote:Minnir nefnilega að sett hafi verið á hann 2.3-4


nahhh, er það?

Ef svo er, þá veð ég í mikilli villu....

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 15:04
by IceDev
Well, segjum bara svo að það var svo mikið sett á hann að ég flutti barasta inn bíl

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 15:05
by arnibjorn
IceDev wrote:Well, segjum bara svo að það var svo mikið sett á hann að ég flutti barasta inn bíl

Af hverju fluttiru ekki inn Z3? Varst alltaf svo mikið að spá í þeim :)

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 15:08
by IceDev
Því að þeir voru ekki hagstæðir í innflutningi

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 20:00
by Spiderman
Hann fékkst fyrir 1,7 þegar fyrsti eigandinn seldi hann fyrir um ári síðan. Ég sá þennan bíl á ferðinni í Breiðholti í síðustu viku.

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 20:24
by Bjössi
og var á sínum tíma með einkanúmerið DW 13 ef mig misminnir ekki
og ásett verð var 1890þús