Page 1 of 1

Þjónustuaðili fyrir BMW mótorhjól?

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 12:26
by kev82
Ég er að kaupa BMW F 650 GS 2001 mótorhjól frá þýskalandi.

Þar sem þetta er frá bmw umboði þar úti þá fylgir 1 árs evrópuábyrgð.

Hver sér um ábyrgðarþjónustu á BMW mótorhjólum hér á landi?


Og svona fyrir þá sem eru forvitnir þá er þetta hjólið:
http://www.leenks.com/files/bmw

Nýskráð í mars 2001, keyrt 10þús

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 12:32
by ///MR HUNG
Þetta er eitthvað fyrir Bebecar :lol:

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:23
by Frikki
Er það ekki bara B&L og síðan sjá þeir um að finna verkstæði

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:31
by kev82
Jú, ég ætla að hringja í þá og sjá hvað þeir segja.

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 13:40
by jens
Flott hjól og til lukku.

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 14:16
by kev82
B&L vildu ekki kannast við að sjá um ábyrgðarþjónustu á BMW mótorhjólum... Bentu mér á að tala við Harley umboðið...

Ætli maður sé alveg að kaupa köttinn í sekknum - enginn almennilegur þjónustuaðili til staðar?

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 14:35
by HPH
Einhvertíman heirði ég það að snjósleða/Articat verkstæði B&L sæi um Hjólin?(birt án ábirðar)

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 15:12
by Geirinn
Avusblau ?

PostPosted: Tue 24. Oct 2006 15:55
by Logi
B&L hefur ekki flutt inn hjól og þjónustar þau ekki eftir því sem ég best veit...

Vilja það ekki vegna þess hve þjónustustigið þarf að vera hátt að kröfu BMW og markaðurinn hér er lítill!