Page 1 of 9

Leikdagur Sunnudaginn 22. Október

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:09
by Porsche-Ísland
Leikdagur verður haldinn Sunnudaginn 22.Október.

Síðast mættu Hetjur hafsins og skemmtu sér. Núna er spáinn sól og smá gola.

Menn þurfa ekki að eiga eitthverjar ofurgræjur til að skemmta sér. Skiptir engur máli hvort drifið er að framan eða aftan eða allan hringinn. Allir sem hafa ekið hafa skemmt sér.

Allir velkomnir.


Brautin verður opin frá 11 og fram eftir degi. Fer eftir aðsókn.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.


Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 3000 krónur.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 3000 krónur í seðlum.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Ég endurtek.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.


Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.



Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. 22 / 10 / 2006


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:10
by Aron Andrew
újee 8)

Mæti!

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:15
by ///M
Ég vona að ég komist núna,,, komst ekki síðast þar sem ég var víst enþá blendfullur þegar reynt var að vekja mig um morguninn :roll:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:22
by íbbi_
ég ætla reyna komast á 318iS :D

verst að eigendaskiptin eru ekki komin í gegn sem ég skilaði inn í borgartúninu á mánudaginn.. eitthvað furðulegt

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 00:52
by íbbi_
jáá fyrri eigandi er s.s ekkert að skila inn :roll: það væri nú alveg eftir því maður.. ég á bara ekki að komast

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 08:17
by ömmudriver
Minnz mætir á 318 isss :lol:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 08:44
by Stanky
Bah,

á ekki fokkinn dekk! :S

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 08:58
by saemi
Mæti bara á staðinn og tek RUN 8) 8)

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 09:05
by bimmer
saemi wrote:Mæti bara á staðinn og tek RUN 8) 8)


Og við erum væntanlega að tala um á IMOLA RAUÐUM gaur ekki satt?

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 12:16
by ValliFudd
ég mæti núna.. sveikst undan síðast.. en aðallega af því að konan í TM var á túr :) eða eitthvað svoleiðis.. ég mæti allavega annaðhvort á 323 eða 318... hey.. má ég mæta á 2 bílum fyrir 1 gjald? :oops: :lol:

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 14:08
by saemi
bimmer wrote:
saemi wrote:Mæti bara á staðinn og tek RUN 8) 8)


Og við erum væntanlega að tala um á IMOLA RAUÐUM gaur ekki satt?


Ég held að það sé engin leið framhjá því 8) ....

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 14:27
by gstuning
saemi wrote:
bimmer wrote:
saemi wrote:Mæti bara á staðinn og tek RUN 8) 8)


Og við erum væntanlega að tala um á IMOLA RAUÐUM gaur ekki satt?


Ég held að það sé engin leið framhjá því 8) ....


Feitur M POWER mætingur á brautinni sýnist mér á öllu

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 14:30
by aronjarl
er það ekki málið ..! BMW M Power

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 19:18
by Dohc
ég mæti á Nissan-inum 8)

PostPosted: Thu 19. Oct 2006 22:32
by Alpina
Ég er beztur :roll: :roll: