Page 1 of 8

Leikdagur Sunnudaginn 1. Október

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 08:08
by Porsche-Ísland
Vegna fjölda áskoranna frá Hjólbarðaverkstæðum verður en einn leikdagurinn haldinn Sunnudaginn 1. Október á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 11 og eitthvað fram eftir degi. Fer eftir aðsókn.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 3000 krónur.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 3000 krónur í seðlum.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Ég endurtek.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Sérregla fyrir Nonna Vett.
Vinsamlegast komdu með þann fjölda af góðum dekkjum sem duga daginn.




Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. 01 / 10 / 2006


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 08:18
by gstuning
I´ll C U THEN !

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 08:51
by Aron Andrew
Ég kem að horfa í þetta skiptið.

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 09:02
by Erica
mæti á bílnum og tek smá á honum..

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 10:44
by Tommi Camaro
þetta var algjör snildd ætli maður verði ekki að prufa roadster í þessu ..
myndi segja að nonni OWN þessa braut :!:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 10:52
by Sezar
Tommi Camaro wrote:þetta var algjör snildd ætli maður verði ekki að prufa roadster í þessu ..
myndi segja að nonni OWN þessa braut :!:

Fæ ég að taka íann Tommi? :twisted:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 11:04
by Tommi Camaro
Sezar wrote:
Tommi Camaro wrote:þetta var algjör snildd ætli maður verði ekki að prufa roadster í þessu ..
myndi segja að nonni OWN þessa braut :!:

Fæ ég að taka íann Tommi? :twisted:

veitekki

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 11:20
by Sezar
Tommi Camaro wrote:
Sezar wrote:
Tommi Camaro wrote:þetta var algjör snildd ætli maður verði ekki að prufa roadster í þessu ..
myndi segja að nonni OWN þessa braut :!:

Fæ ég að taka íann Tommi? :twisted:

veitekki

Nei, verum ekkert að því, sumir hér hafa farið illa úr reynsluakstri á M-Z :angel:
Ég bíð bara rólegur eftir minni :wink:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 11:21
by fart
Hvernig er það, hafa menn ekki tekið heilmiklum framförum í akstri síðan þetta byrjaði?

Ég hef allavega tekið eftir því með mig að mín lærdómskúrfa er ansi brött ef ég ég kemst á braut eða réttar aðstæður.

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 11:21
by gstuning
Sezar wrote:
Tommi Camaro wrote:
Sezar wrote:
Tommi Camaro wrote:þetta var algjör snildd ætli maður verði ekki að prufa roadster í þessu ..
myndi segja að nonni OWN þessa braut :!:

Fæ ég að taka íann Tommi? :twisted:

veitekki

Nei, verum ekkert að því, sumir hér hafa farið illa úr reynsluakstri á M-Z :angel:
Ég bíð bara rólegur eftir minni :wink:


ég þarf að fá að sitja í hjá þér næsta sunnudag, :)

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 19:00
by Jón Ragnar
Hey ég mæti á einhverju með drifið á vitlausum enda :lol:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 19:06
by ValliFudd
Er að reyna að plögga mér fríi í vinnunni ennþá, en ég kem vonandi á litla kvikindinu hehe :)

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 19:49
by Lindemann
ég er í fríi......þannig ég kem!!! 8) 8)

þarf bara að skjótast að redda 16" dekkjunum og láta umfelga fyrir mig....18" eru komin inní striga :oops:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 23:07
by Alpina
Spurning að mæta á sleðanum með hreindýrin ,,,,,,BEISLUÐ :naughty:

PostPosted: Tue 26. Sep 2006 23:25
by Porsche-Ísland
Veðurspáin er góð og heyrst hefur að það verði fjölmenni.

Alla vega er allt brjálað að gera á dekkjaverkstæðunum.