hagstæð bílalán
Datt þetta allt í einu í hug, hefur e-r séð auglýstan bíl með áhvílandi láni sem er ekki hagstætt.
Til sölu bíll, áhvílandi mjög óhagstætt bílalán!
Um er að ræða gjaldeyrislán og sú upphæð sem er áhvílandi í bílnum er talsvert hærri en markaðsvirði bílsins. Ég ræð alls ekki við að borga af þessum bíl því mánaðarleg afborgun er um 80þús á mánuði, einnig hefur hann verið að bila talsvert undanfarið og yfirdrátturinn minn er alveg kominn í max. Ég er ekki skráður eigandi bílsins, heldur einungis umráðamaður. Þrjár seinustu greiðslur eru í ógreiddar, ein í milliinnheimtu og ég alveg að missa bílinn. Skoða jafnvel að borga með bílnum, fer þó eftir því hvort amma geti lánað mér pening.
ekkert illa meint bara datt þetta svona allt í einu í hug því það er svo mikið af bílum í boði með áhvílandi "hagstætt" bílalán.