Page 1 of 1
E46 318i

Posted:
Thu 14. Sep 2006 15:24
by 98.OKT
Sælir, var að spá ef einhverjir hérna væru með reynslu af E46 318, þá er ég að spá í hvort einhverjar þekktar bilanir/gallar séu í þeim, og hvað sanngjart verð sé á þessum bílum, þ.e.a.s 99-2000.árg og ekki eknir meira en ca. 130-140.000
Er svolítið að spá í svona bíl fyrir veturinn


Posted:
Thu 14. Sep 2006 16:02
by Bjarki
e46 eru virkilega skemmtilegir bílar, e-ð allt annað en e36. e39 þristur ef svo má að orði komast, sem er í raun eðlilegt því röðin er: e38, e39, e46.
Vökvaundirlyftur, tímakeðja, elektrónísk kveikja, diskar hringinn, 6 loftpúðar, spólvörn. Góður 318i e46 er mikill bíll fyrir peninginn.
Lítil eyðsla en alls ekki kraftlausir bílar.
Svo kemur nýja 4cyl 2l vélin, fjölventla og togar miklu meira.

Posted:
Thu 14. Sep 2006 16:11
by 98.OKT
Takk kærlega fyrir þetta

mun vonandi geta verslað svona bíl á næstu vikum/mánuðum

Posted:
Thu 14. Sep 2006 21:59
by Schulii
En ef þú hefur efni á 320 diesel þá bara Guð minn góður hvað það er skemmtilegur bíll!!
..allavega með 150 hestafla vélinni. Hafði oft heyrt menn tala um hvað vinnslan í þeim kæmi á óvart og það gerði hann svo sannarlega hjá mér!!

Posted:
Thu 14. Sep 2006 22:03
by krullih
er einmitt að láta mig dreyma um 320d...vildi að einhver væri herna til sölu.

Posted:
Thu 14. Sep 2006 22:22
by Djofullinn
Schulii wrote:En ef þú hefur efni á 320 diesel þá bara Guð minn góður hvað það er skemmtilegur bíll!!
..allavega með 150 hestafla vélinni. Hafði oft heyrt menn tala um hvað vinnslan í þeim kæmi á óvart og það gerði hann svo sannarlega hjá mér!!
Algjörlega sammála því. Fannst minn sprækari en 320i. Virkilega skemmtilegir bílar

Posted:
Thu 14. Sep 2006 22:25
by JonHrafn
japp ... 320d >>>>> 318i tog dauðans

Posted:
Fri 15. Sep 2006 13:50
by Arnar
Hvað er 320d bíllinn að eyða svona í venjulegum akstri ?

Posted:
Fri 15. Sep 2006 14:07
by Djofullinn
Arnar wrote:Hvað er 320d bíllinn að eyða svona í venjulegum akstri ?
Eyddi um 7L innanbæjar hjá mér

Posted:
Fri 15. Sep 2006 16:24
by JonHrafn
mæli minn í 7,2l

Posted:
Fri 15. Sep 2006 18:39
by 98.OKT
Ég hef reyndar verið frekar heitur fyrir 320D bílunum, fínt afl og mjög sparneytinn, ég mun skoða þetta mjög vel þegar að því kemur.

Posted:
Fri 15. Sep 2006 19:50
by Bjarki
Held það séu bara til 2 320d bílar með gömlu 136hp vélinni. Vélin í öðrum fór í e-ð spað og hinn lenti í tjóni. Þannig það er ekki mikill notaðabílamarkaður með þessa bíla, ástæðan náttúrlega sú löggjöf sem við bjuggum við.
Bílarnir með nýju vélinni eru komnir í aðeins annan verðflokk.

Posted:
Fri 15. Sep 2006 20:11
by Djofullinn
Bjarki wrote:Held það séu bara til 2 320d bílar með gömlu 136hp vélinni. Vélin í öðrum fór í e-ð spað og hinn lenti í tjóni. Þannig það er ekki mikill notaðabílamarkaður með þessa bíla, ástæðan náttúrlega sú löggjöf sem við bjuggum við.
Bílarnir með nýju vélinni eru komnir í aðeins annan verðflokk.
Fannstu einhverntíman út hvar af þessum var bíllinn sem ég átti?

Posted:
Fri 15. Sep 2006 20:27
by Bjarki
Djofullinn wrote:Fannstu einhverntíman út hvar af þessum var bíllinn sem ég átti?
Nei, sá samt þinn gamla í dag, lítur vel út. Svo náttúrlega eru bílar ekkert endilega verri þó vélar hafi farið eða e-r tjón ef vel er að verki staðið.

Posted:
Fri 15. Sep 2006 21:06
by IvanAnders
Það var E46 320d uppí tb fyrir mánuði or sum, var í svolítinn tíma, minnir að það hafi komið blokk úr nýrri vélinni og allt fært á milli (birt án ábyrgðar) en Kiddi var í því verki og því er ekkert að óttast
