Page 1 of 1

Gatastærð á E 34???????

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:04
by hjalmar87
hvað er gatastærðinn á E 34? 5 x ?hvað

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:06
by JónP
5x120

:)

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:08
by hjalmar87
semsagt felgur undan E 36 passa undir E 34? :roll:

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:14
by Danni
Ef þú setur speisera. offsettið á E36 er allt annað en á E34. Ég var með Style 18 undan E36 á mínum E34 og ég þurfti 25mm speisera minnir mig.

hmm

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:18
by hjalmar87
erum við að tala um einhvern pening eða og hvernig virka þessir speiserar?

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:20
by Danni
kosta einhverjar 5700 kr 2 speiserar hjá ÁG, og svo þarfu lengri felgubolta sem kosta einhvern helling líka. Og þessir speisarar ýta felgunum lengra út, bara einsog það sé komið annað offsett á felgurnar.

hmm

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:23
by hjalmar87
ok er að spá í felgunum sem eru til solu herna a kraftinum, SER er að selja þær undan 325 bilnum sinum offsettið á þeim er ET35.. segir það þér eitthvað?

Re: hmm

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:23
by burgerking
hjalmar87 wrote:erum við að tala um einhvern pening eða og hvernig virka þessir speiserar?


Man ekki hvernig þetta kostar... en þetta lýtur svona út ---> Image


Man ekki hvað þetta kostar. en þú setur þetta á milli dekksins og því sem þú skrúfar dekkið á.. og þetta stækkar/minnkar miðjuna sem þú setur dekkið uppá.



Edit: of lengi að skrifa :oops:

hmm

PostPosted: Tue 12. Sep 2006 23:31
by hjalmar87
veit það einhver? hann segir að þær sitji utarlega´útaf offsettinu á þessum felgum, getur þá verið að þær passi á e 34?

PostPosted: Wed 13. Sep 2006 00:26
by íbbi_
speiser ýtir bílnum lengra frá felguni :D

PostPosted: Wed 13. Sep 2006 03:16
by Bjarki
þetta kostar alveg helling.
Svo þarf oftast 8 miðjuhringi á milli felgu og spacer og svo á milli spacer og naf.

PostPosted: Wed 13. Sep 2006 22:09
by saemi
hjalmar87 wrote:hvað er gatastærðinn á E 34? 5 x ?hvað


Gatastærðin....... hmmmmm mældu bara gatið, það er svona rétt aðeins stærra en felguboltinn. Kannski svona 5mm stærra í þvermál :lol:

Nei, bara þetta stakk svo í augun. Þetta heitir gatadeiling.

Svo heitir þetta "spacerar" eða skv. íslensku þýðingu minni, þá vil ég skýra þetta sem: "fráfærara". Speiser er eitthvað úti í geimi.

En það er rétt sem sagt er hérna í meginatriðum. Það er hægt að setja felgur af þristum undir aðra bíla, en þá verður að nota spacera. Misþykka, en það er NAUÐSYNLEGT að setja lengri felgubolta líka. Þú vilt ekki lenda í því að missa felguna undan því boltinn tók bara á 3 gengjum.