Bílablogg
Nú á dögum þegar enginn er maður með mönnum nema hann bloggi þá velti ég fyrir mér hvort einhver sé með bílablogg. Bílablogg væri þá bara einfaldlega blogg þar sem ítarlega er fjallað um bílinn sinn og hvað sé að gerast með hann hverju sinni, skoðanir, bilanir, breytingar, ferðalög, sala. Þannig væri hægt að fylgjast með uppáhaldsbílum sínum jafnvel eftir að þeir skipta um eigendur. Er einhver með svoleiðis?