Ég og félagi minn og
4 ÁRA SONUR MINN kíktum hring í bæinn eftir kvatmílu brautina á mínum M5 sem ætti ekki að vera frásögu færandi
Þegar ég er að keyra sæbrautina þá tek ég eftir Löggu volvo fyrir aftan mig á ljósunum hjá Húsasmiðjunni og ok passa mig bara og þeir elta mig og ég tek tjekkið á þá og svissa á milli akreina og þeir elta,
Þá vissi ég að þeir væru að fara að stoppa mig enn það gerist ekkert fyrr enn ég er að keyra yfir ljósin hjá hesthúsunum í kópavogi á móti smáralind að það kemur annar löggubíll með ljósin og alles og stoppar mig.
Ég var bara

2löggubílar og ég gerði ekki rassgat af mér enn nei nei,Setja þessir hálfvitar ekki hátalara kerfið í botn og segja mér að drepa á bílnum,Setja lykilinn út um gluggann þar sem hann sést,Hendur út um gluggann þar sem þær sjást og svo kom eitt gerpið hlaupandi með kylfu

og sagði mér að sýna hendur og koma út.
Er mér skellt á mitt eigið skott og HANDJÁRNAÐUR með það sama fyrir framan barnið mitt og geðveika umferð á hafnarfjarðarveginum og það voru komnir 4 LÖGGUBÍLAR og það er nú ekki amarlegt á svona bíl með einkanúmer
Þessir *ritskoðað* voguðu sér að setja mig inn í einn bíl og strákinn minn sem var hágrenjandi af hræðslu inn í annann bíll og sögðu mér svo að hafa ekki áhyggjaur af honum því þeir sæju um hann
Eru þetta tilfinningalausir vitleysingjar í þessu jobbi????
Ég fæ ekkert að vita hvað sé í gangi fyrr enn ég er kominn á stöðina í hafnarfirði og fékk ég far alveg frítt þangað í handjárnum,Vinur minn fékk þá sem betur fer til að skutla honum og guttanum heim enn ekki upp á stöð sem hefði alveg farið með litla því svona guttar eru ekki alveg að fatta svona löggu gerpi.
Svo þegar ég tala við varðstjórann þá kemur í ljós að þeir hafi fengið ábenndingu um að það séu VOPN Í ÞESSUM BÍL!!!.
Þá var minn bara
Þvílík og önnur eins þvæla að það hálfa væri miklu meira enn nóg.
Vopnaeign mín í gegnum tíðina nær yfir túttubyssur og teygjubyssur og vasahnífa og búið.
Svo var leitað á mér og í bílnum og það var ekki einusinni naglaþjöl í honum sem gæti verið vopn.....Skrítið haaaa
Og það besta er að ég fæ ekki að vita hver bullaði þessu í þá og fæ ekki að vita hver rökin fyrir þessu er
Þetta þýðir á góðri Íslensku lögfræðingur og læti eftir helgi því þetta að taka handtakamann með látum og það fyrir framan barnið mans og að stía okkur í sundur er eitthvað sem ég mun ekki sætta mig við, og *ritskoðað* !!!
Svo er bara sagt við mann... ahh fyrirgefðu vinur
Enda eru spólför út úr portinu hjá þeim,Þeir fengu þau alveg frítt.
Ef það sá gerði þetta les þetta og ætlaði að vera fyndinn þá mun ég virkilega reyna að finna út hver gerði þetta og hann verður í svekkjandi málum.