Ég ætlaði alltaf og er búinn að vera harður á því að sprauta þær bara svartar með frekar miklum gljáa.
Núna er ég hinsvegar pínu pínu pínu pælingu að sprauta þær rauðar. Ég er samt eiginlega alvega á svörtum.
Þetta er það sem e36 guttarnir kalla "oem big brake kit" þetta fyllir alveg vel uppí 17". Það er hinsvegar svo vinsælt hérna að sprauta stock dælurnar rauðar að ég veit ekki alveg hvað mér finnst.
Síðann er bílinn minn nánast eins svartur og getur orðið þannig að rauðar myndu alveg öskra á mann og ég held að ég myndi ekki fíla það.
Ég er ekki með Photoshop hérna í vinunni þannig að ég læt mynd fylgja af e36 á svörtum 17" og rauðum 330 bremsum. Reyndar er þessi á M contours þannig að ég held að þetta sæist enþá betur á mínum.




