Page 1 of 2

Löður

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 15:18
by HPH
Hvernig er fólk að fíla það þvo bílana sína það?
t.d. hvernig eru gæjurnar? er þetta eithvað bölvað drasl eða-?
er Góð sápa, Tjöru hreinsir, háþrýsti dæla.
ég mun senni lega mæta með minn eiginn svamp því að ég vill helst ekki nota svona almenings kústa á bílinn minn.

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 15:24
by Einarsss
Þetta er fínt þarna ... fyrir utan sápu burstann... minnir að þarna sé háþrýstivatnsbyssa, tjöruleysir, felguhreinsir og léttbón ... man ekki eftir fleiru

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 15:26
by pallorri
Tjöruleysirinn þarna er ágætur en það mætti vera meiri kraftur á sprautunni. Ég er ekki alveg viss hvort þú getir skrúfað stútinn af kústinum og sett þinn á en ég nota hann yfirleitt bara á felgurnar hjá mér. Háþrýstidælan þarna er góð en svo finnst mér best að koma sjálfur með bón.

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 15:29
by Jón Ragnar
Dýrt :(

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 15:47
by Ketill Gauti
Vinur minn fór einu sinni í Löður og bíllinn hjá honum upplitaðist og bíllinn breyttist úr rauðum í bleikann eftir þvottinn :lol: en það gerðist bara vegna lélegs lakks en sjálfur hef ég ágæta reynslu af Löður þvottastöðvunum þótt það sé soldið dýrt

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:05
by Aron Andrew
Mér finnst það versta við þetta hvað það er dýrt, 100 kr 90 sek

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:22
by Einarsss
ég veit ekki ... mér finnst þetta ekki svo dýrt .... kostar mig þá 6-700 kall að þvo bílinn hjá mér ... ódýarar en á svona sjálfvirkum bílaþvottastöðvum og sennilega betur gert

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:25
by arnibjorn
einarsss wrote:ég veit ekki ... mér finnst þetta ekki svo dýrt .... kostar mig þá 6-700 kall að þvo bílinn hjá mér ... ódýarar en á svona sjálfvirkum bílaþvottastöðvum og sennilega betur gert


En hvernig virkar þetta þarna hjá löður? Ég hef aldrei þvegið bílinn minn þar...
Í einhverjum þræði hérna voru nokkrir sem töluðu um að þeir færu hvorki með svamp né kúst á bílinn sinn í allri drullunni sem kemur á bílana núna, bara tjöruhreinsi og svo með háþrýstidælu. Er einhversstaðar hægt að komast bara í háþrýstidælu? Ekki allir sem eiga háþrýstidælu heima hjá sér :P

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:28
by Einarsss
Þú getur leigt háþrýstidælu fyrir 100 kall í 90 sek hjá löður .... og fyrir auka 100 kall færðu tjöruhhreinsir í 90 sek líka ;) ... fór þarna fyrir 2 kvöldum með 200 kall .... þegar 90 sek voru búnar á tjöruhreinsinum þá hélt áfram að bunast úr stútnum smá þannig að ég rennbleytti bílinn á 6 mín :twisted: og skolaði svo af með háþrýstidælunni

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:34
by arnibjorn
einarsss wrote:Þú getur leigt háþrýstidælu fyrir 100 kall í 90 sek hjá löður .... og fyrir auka 100 kall færðu tjöruhhreinsir í 90 sek líka ;) ... fór þarna fyrir 2 kvöldum með 200 kall .... þegar 90 sek voru búnar á tjöruhreinsinum þá hélt áfram að bunast úr stútnum smá þannig að ég rennbleytti bílinn á 6 mín :twisted: og skolaði svo af með háþrýstidælunni


hehe góður :P
Þannig að það reyndist betra en þvotturinn sem hann fékk þegar borbet fór undir :lol:

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 16:49
by Einarsss
arnibjorn wrote:
einarsss wrote:Þú getur leigt háþrýstidælu fyrir 100 kall í 90 sek hjá löður .... og fyrir auka 100 kall færðu tjöruhhreinsir í 90 sek líka ;) ... fór þarna fyrir 2 kvöldum með 200 kall .... þegar 90 sek voru búnar á tjöruhreinsinum þá hélt áfram að bunast úr stútnum smá þannig að ég rennbleytti bílinn á 6 mín :twisted: og skolaði svo af með háþrýstidælunni


hehe góður :P
Þannig að það reyndist betra en þvotturinn sem hann fékk þegar borbet fór undir :lol:


já aðeins ... hefði þurft að vera með fleiri 100 kalla á mér til að sápa og þrífa almennilega ... geri það fyrir næstu myndatöku ;)

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 17:03
by íbbi_
ég þríf mözduna alltaf í löður mosó, tjörþvæ, sápa og síðan fljótandi bónið yfir, er að ná að gerann alveg bling fyrir 400kall, þar af leiðandi telst það nánast undir líkamsrækt líka.. tjöruhreinsirinn finnst mér mjög góður, sápan alltílæ, en mest varð ég á að bónið virðist vera alveg ágætt, en væntingarnar voru líka engar,

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 17:42
by BMW4life
Fer með 1x100 í tjöruhreinsir, ef það er ógeðsleg færð eins og núna þá nota ég 2x100 í háþrýstidæluna annars 1x100. Svampa hann síðan og nota 2x100 í háþrýstidæluna.

Þannig að ég er kominn með bílinn alveg hreinann fyrir 400 kall.

Ef ég nenni ekki að svampa hann og svona þá úða ég bara á hann tjöruhreinsi og tek hann vel með háþrístidælunni, 300 kall og málið er dautt.

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 18:00
by JónP
íbbi_ wrote:ég þríf Mözduna alltaf í löður mosó, tjörþvæ, sápa og síðan fljótandi bónið yfir


fyndið... ég geri þetta alveg eins og líka í mosó, eini munurinn er að ég er á Vento

PostPosted: Thu 09. Feb 2006 18:19
by Thrullerinn
Mér finnst löður það besta fáanlega þvottaaðstaðan.
Bæði eru dælurnar góðar, efnin fín og aðstaðan vel upplýst.
Finnst þetta ekki dýrt, 200-300 kall nægir mér í 75% tilvikum.

Hef oft velt fyrir mér hvort þeir noti varmaskipti á vatnið?