Page 1 of 2

VARÚÐ - Ultra Tjöruhreinsir!

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 09:16
by StoneHead
Jú eins og fyrirsögnin gefur til kynna að þá ætla ég að vara menn við að nota ULTRA TJÖRUHREINSI.
Þannig er mál með vexti að ég ætlaði mér að þrífa dýrið í nótt, þar sem ég er með topp aðstöðu til þess að þrífa dýrið. Ég dreif mig af stað, tók með mér fötu,svamp,pokann með öllu Autoglym dótinu og þennan blessaða tjöruhreinsi.

Ég skolaði dýrið, úðaði tjöruhreinsinum á og lét hann standa á bílnum í tæpar 3 mínotur. Þá byrjaði ég með svampinn að nudda bílinn. Þegar því var lokið, að þá skolaði ég þetta af honum. Ég tók upp vaskaskinnið og þurrkaði bleituna af honum og sá ég þá að þetta festist basicly á bílnum. Ég náði megninu af með því að nota Autoglym sápuna, eftir 2 umferðir.

Þetta var bara vesen, þessi helvítis ULTRA TJÖRUHREINSIR er RUSL!!! :evil:

Ekki kaupa þennan horbjóð.

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 09:18
by Angelic0-
meirasegja ég vissi þetta :)

En nú vita það fleiri :)

Ég notast við SÁM og svo bara það sem að bílabaðið býður uppá !

Alveg glötuð þessi snjókoma síðan :(

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 09:43
by StoneHead
Hehe, ástandið er orðið helvíti slæmt ef þú vissir þetta og ekki ég :roll: :lol:

En já, Sámur er mikið betra efni.
FARÐU SNJÓR!!! MÉR LANGAR AÐ KEYRA ALMENNILEGA!!!!!

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 09:52
by Angelic0-
StoneHead wrote:Hehe, ástandið er orðið helvíti slæmt ef þú vissir þetta og ekki ég :roll: :lol:

En já, Sámur er mikið betra efni.
FARÐU SNJÓR!!! MÉR LANGAR AÐ KEYRA ALMENNILEGA!!!!!


Hehe, en já... snjórinn böggar mig meir en allt, en það skiptir mig engu núna... keyri ekkert fyrr en eftir helgi korteðer!

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 10:44
by Danni
Ég notaði bara einhvern olúhreinsir sem ég fann inní skúr og hann virkaði fín. Glansar vel af bílnum og hann er bara mjög hreinn og fínn :D

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 10:48
by Einarsss
ég er með ógeðslegar tjöru klessur útum allt .... virkar ekkert þó ég láti einhvern tjöruhreinsi liggja á þessu .. man ekkert hvað hann heitir ... hvaða efni mæliði með að nota á svona ?

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 10:52
by Danni
Sko einsog ég gerði þetta, bara fann pjúra olíuhreinsi. Engin sápa blönduð í hann eða neitt. Skolaði fyrst bílinn allan, sprautaði olíuhreinsinum á staðina sem mesta tjaran var, fór yfir allt nema framrúðuna með svampi, skolaði aftur, fyllti fötu af vatni blandað í Sonax bílasápu, fór yfir allan bílinn með öðrum svampi, alls ekki sama og fór í olíuhreinsinn! Skolaði svo af bílnum og hann var fínn.

Var það ný bónaður hjá mér að ég þurfti ekki að bóna uppá nýtt. Hafði líka engan tíma til þessi..

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 10:54
by Einsii
Strákar. Sonax hardwax er langbest á tjöruna.. tjöruhreinsar eru alls ekkert hollir fyrir lakkið.. Bara taka brúsa af Hardwax, helling af grysju og byrja að nudda :D

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 10:55
by Einarsss
já ég þarf að fara í svona aðgerðir fljótlega :? hryllilegt að láta sjá sig á bílnum svona skítugum

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 12:00
by fart
ekkert sonax hardwax nema til að bóna. Fáið ykkur bara 1047 frá Olís (olíuhreinsir).

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 12:04
by arnibjorn
einarsss wrote:já ég þarf að fara í svona aðgerðir fljótlega :? hryllilegt að láta sjá sig á bílnum svona skítugum


Bíllinn þinn skítugur?? :o Þú sem að þreifst hann svo vel í gær :lol:

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 12:11
by bimmer
Einsii wrote:Strákar. Sonax hardwax er langbest á tjöruna.. tjöruhreinsar eru alls ekkert hollir fyrir lakkið.. Bara taka brúsa af Hardwax, helling af grysju og byrja að nudda :D


Þetta getur varla verið gott fyrir lakkið.

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 13:17
by Dr. E31
Var bíllinn ekki ískaldur þegar þú byrjaðir að þrífa hann?

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 14:09
by gstuning
bimmer wrote:
Einsii wrote:Strákar. Sonax hardwax er langbest á tjöruna.. tjöruhreinsar eru alls ekkert hollir fyrir lakkið.. Bara taka brúsa af Hardwax, helling af grysju og byrja að nudda :D


Þetta getur varla verið gott fyrir lakkið.


Getur ekki verið verra en olíhreinsir og svampur,

þegar er mega drulla og tjara þá kem ég ekki við bílinn ,,,

tjöruhreinsir og háþrýstidæla er málið, bara að velja hreinsirnn er aðal málið

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 14:19
by fart
gstuning wrote:
bimmer wrote:
Einsii wrote:Strákar. Sonax hardwax er langbest á tjöruna.. tjöruhreinsar eru alls ekkert hollir fyrir lakkið.. Bara taka brúsa af Hardwax, helling af grysju og byrja að nudda :D


Þetta getur varla verið gott fyrir lakkið.


Getur ekki verið verra en olíhreinsir og svampur,

þegar er mega drulla og tjara þá kem ég ekki við bílinn ,,,

tjöruhreinsir og háþrýstidæla er málið, bara að velja hreinsirnn er aðal málið


WORD! Stekan hreinsir og minna nudd.