Page 1 of 1

Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi

PostPosted: Mon 06. Feb 2006 21:40
by adler
Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi

Netleitarfyrirtækið Google greindi frá því í dag að þýsk vefsíða bílaframleiðandans BMW hefði verið fjarlægð úr leitarvél Goole. Ástæðan er sú að BMW beitti brögðum til að láta vefsíðu fyrirtækisins birtast ofarlega á lista leitarvélar Google. Forsvarsmenn BMW neita að hafa haft óhreint mjöl í pokahorninu.

Að sögn forsvarsmanna Google voru vinsæl leitarorð að finna í kóða vefsóðu bílaframleiðandans og var þeim að „þakka“ að hún lenti ofarlega á blaði þegar netverjar leituðu bíla eftir ákveðnum leitarorðum. Tilfæringar sem þessar eru brot á ákvæðum Google um leitarorð á vefsíðum fyrirtækja. Notendur leitarvélarinnar gátu hins vegar ekki séð, að leitarorðin áttu ekkert skylt með vefsíðu BMW og leit þeirra þá stundina.

Talsmaður BMW í Þýskalandi segist hins vegar vera sannfærður um að síða fyrirtækisins, www.bmw.de, birtist á leitarvél Google innan nokkurra daga.

PostPosted: Mon 06. Feb 2006 22:05
by freysi
Þeir fá allravegna umfjöllun og þar með fá þeir umferð á síðuna.
Efast um að þeir tapi miklum flettingum af þessu, allravegna ekki í dag :)

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 00:51
by gstuning
ég hef aldrei EVER fengið www.bmw.de sem link þegar ég hef leitað á google,

þetta er líklega trick hjá BMW og google að auglýsa hvort annað,

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 15:07
by Sprangus
Ef þeir ættla að loka á BMW fyrir að gera þetta verða þeir að gera þetta líka við allar hinar síðurnar sem gera þetta :roll: svo oft sem maður skrifar leitar orð og hlutir sem koma enganveginn leitarorðinu við poppa upp !

Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 17:44
by Hemmi
var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn :whistle:

Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 22:24
by Ketill Gauti
Hemmi wrote:var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn :whistle:


Sexy midgets :?: :-s

Re: Google lokar á vefsíðu BMW í Þýskalandi

PostPosted: Wed 08. Feb 2006 02:04
by iar
Ketill Gauti wrote:
Hemmi wrote:var einmitt að spá afhverju bmw.de kom upp þegar ég sló inn sexy midgets um daginn :whistle:


Sexy midgets :?: :-s


Já og bmw.de poppaði líka upp þegar maður sló inn Emil im lederhosen. Frekar pirrandi...

PostPosted: Wed 08. Feb 2006 08:24
by Schnitzerinn
Það er líka búið að hreinsa ALLT útúr kóðanum :lol:

<meta name="KEYWORDS" content="">
<meta name="DESCRIPTION" content="">