Page 1 of 2

info um 316i compact

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 21:44
by jens
Hvernig hafa þessir bílar reynst td. eyðsla og hvernig eru þeir í akstri samanborið við 4d E36. Hvar er í lagi að borga fyrir lítið ekinn '99 model sem lítur þokkalega út. Þætti vænt um að fá smá info bæði kosti og galla.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 21:50
by arnibjorn
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ht=compact

Þarna er eitthvað talað um þetta en sýnist þetta hafa snúist út eitthvað hondu rugl :lol:

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:08
by Djofullinn
Compact bílarnir sem eru með M pakkanum (Held að B&L hafi bara tekið inn 316ti og bara með M pakkanum) eru fáranlega skemmtilegir í akstri þrátt fyrir frekar máttlausan mótor. Og þeir eyða frekar litlu, ekki með það á hreinu hversu litlu reyndar...

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:10
by Angelic0-
Mjög skemmtilegir bílar í akstri :)

máttlaus mótor hvað, þetta orkar bara mjög vel m.v. 1600 tík :)

væri til í að eiga svona með S50

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:12
by Djofullinn
Angelic0- wrote:Mjög skemmtilegir bílar í akstri :)

máttlaus mótor hvað, þetta orkar bara mjög vel m.v. 1600 tík :)

væri til í að eiga svona með S50
Jájá gerir það. En 1600 tík er samt sem áður máttlaus ;)

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:12
by ///Matti
Ég átti 316 Compact með M pakkanum í 1 ár og var mjöög sáttur með eyðslu og aksturseiginleikana :wink: Fínustu bílar bara verð ég að segja.
Image

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:13
by Djofullinn
Þú verður samt að taka eitt í reikninginn að flestum BMW gaurum finnst þeir ljótir að aftan og því kannski erfiðari í endursölu. Fá bara einhvern vel undir markaðsverði og þá ertu góður ;)

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:14
by Angelic0-
Djofullinn wrote:Þú verður samt að taka eitt í reikninginn að flestum BMW gaurum finnst þeir ljótir að aftan og því kannski erfiðari í endursölu. Fá bara einhvern vel undir markaðsverði og þá ertu góður ;)


Stelpur elska þessa bíla, 4 some reason :O

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 23:42
by gunnar
Mér finnst þetta svolítið töff bílar..

Hentugir að mörgu leyti og væri eflaust td fínn skólabíll..

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 09:15
by jens
Þekkir einhver þennan bíl og er hann ekki með ///M pakka mér sýnist það.

Image

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 09:17
by íbbi_
mætti halda að einhver 80's glysrokkari hafi reipað þessum...
ég var að spá í sona bíl og reynsluók fyrir öruglega að verða 3 árum og þá fannst mér mjög lítið koma til þeirra, fannst þeir bara ekki nógu... miklir bmw eitthvað

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 09:32
by Einarsss
nice flames :?

þú vonandi tekur þetta í burtu ef þú fjárfestir í honum .... annars get ég ekkert sagt um þessa compact bíla... og hef aldrei séð þennan´bíl

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 09:35
by bjahja
Hvaða djöfulsins viðbjóður er þetta :evil:
En já hann er með M kitti

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 09:38
by arnibjorn
Ég held að ég hafi séð þennan bíl til sölu á live2cruize einhvern tíman og þar sagði gaurinn að þetta hefði bara verið gert í gríni og það væri ekki mikið mál að taka þetta af :lol:

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 10:00
by Djofullinn
Miðað við það að hann er með M stuðurum þá er hann líklega með M fjöðruninni :) En hann er asnalega hár að framan...
Og ég get ekki ímyndað mér annað en að ungur gaur eigi hann miðað við logana... Spurning hvort hann hafi fengið rétt viðhald?