Page 1 of 2

Þrífa hesthúsið

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 15:17
by StoneHead
Jú daginn! Ég ætlaði að afla mér upplýsinga um hvernig best væri að þrífa vélarsal í 540 '02 bíl?

Þá hvaða efni ég á að nota, hvernig ég á að nota þau og hvað ber að varast? T.d. Setja plast yfir einhverjar leiðslur eða þess háttar.

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 15:41
by gunnar
Ég hef yfirleitt sett svona matarplast bara yfir tölvuheilann, og ýmislegt sem virðist illa þétt.. Svo hef ég bara tekið tjöruhreinsi og sprautar yfir allt draslið.. Svo bara uppþvottabursta og skrúbbar þetta allt til helvítis..

Svo bara skola þetta með köldu vatni.. Mátt alls ekki hafa bílinn heitann og mátt alls ekki nota heitt vatn..

Fínt að taka svo back 2 black og bera á plastið inn í vélarrúminu þá verður það mega bling 8)

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 15:45
by Svezel

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 15:49
by gunnar
Voðalega skrýtið að þeir skuli nota heitt vatn..

Ég verð því miður að vera ósammála þeim.

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 20:47
by HAMAR
1. Öryggisgleraugu
2. Hanskar
3. Svunta

Þetta eru mikilvægustu atriðin hjá bmwworld við hreinsun á vélarsal.
Vera við öllu viðbúinn. :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 20:53
by Aron Andrew
Make sure engine cleaning is legal in your area first!


Þetta er nokkuð gott líka :lol:

ATH,,,,,,,,,, mjög mikilvægt

PostPosted: Sun 29. Jan 2006 23:26
by Alpina
BMW 8 cyl. eru virkilega viðkvæmir fyrir raka í kveikjukerfi´´´´

ekki er ólíklegt að truntugangur verði í bílnum eftir þvott,,,,,,,,

farðu strax út að keyra eftir þvott

PostPosted: Wed 01. Feb 2006 20:11
by Fieldy
mjög gott líka að gera þetta þar sem er þrýstiloft og þurka allt eftirá þannig :wink:

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 00:00
by Arnar
Fieldy wrote:mjög gott líka að gera þetta þar sem er þrýstiloft og þurka allt eftirá þannig :wink:


Æji ég veit ekki, þú gætir verið að þrýsta vatni þangað sem þú vilt ekki að það fari... betra að keyra hann eins og sveinbjörn benti á og láta hitan af vélinni þurka

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 01:35
by StoneHead
Er maður ekki með því að fara strax út að keyra að láta vatnið gufa upp og getur þanniglagað smeikst allastaðar inn á milli og kólnað og dropað niður á rafkerfið? :roll:

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 01:55
by gunnar
StoneHead wrote:Er maður ekki með því að fara strax út að keyra að láta vatnið gufa upp og getur þanniglagað smeikst allastaðar inn á milli og kólnað og dropað niður á rafkerfið? :roll:


Maður hefði haldið það..

Ég myndi halda að það væri best fyrir bílinn bara að fá að standa inni yfir eina nótt..

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 12:10
by IngiSig
Ef bíllinn er keyrður eftir þvottinn fer vatnið frekar af stað og smígur inn á mishentuga staði, ég held að það sé betra að láta bílinn standa í hægagangi, við það myndast meiri hiti í vélarrúminu (betri aðstæður til uppgufunar) heldur en ef bíllinn væri á ferð.
Ég hef haft þennan háttinn á og finnst virka fínt.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 14:28
by gstuning
IngiSig wrote:Ef bíllinn er keyrður eftir þvottinn fer vatnið frekar af stað og smígur inn á mishentuga staði, ég held að það sé betra að láta bílinn standa í hægagangi, við það myndast meiri hiti í vélarrúminu (betri aðstæður til uppgufunar) heldur en ef bíllinn væri á ferð.
Ég hef haft þennan háttinn á og finnst virka fínt.


vélar eru MJÖG heitar, og gufar því vatnið upp ef maður drífur sig út,

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 15:41
by Geirinn
Hristingur af bíl í hægagangi er nú sjálfsagt nægur til að láta vatn smjúga inn í milli alls staðar.

Beint út að keyra hljómar fyrir mér ekkert sérstaklega en ég ætla engan veginn að rengja það því ég hef ekkert vit á þessu.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 15:42
by Svezel
ég hef aldrei lent í neinu veseni með vélarþvott og gangsetningu strax á eftir, ekki einu sinni á bláu ógninni :lol: