bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Árgerðir á Íslandi https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1368 |
Page 1 of 2 |
Author: | iar [ Tue 29. Apr 2003 22:48 ] |
Post subject: | Árgerðir á Íslandi |
Hvernig er það með skráningar á árgerðum á bílum hér á klakanum.. Er það ekki orðið ansi teygjanlegt hugtak þegar bíll sem er framleiddur 07/1998 er seldur hér sem árgerð 2000? Kannski er það bara ég en mér finnst þetta ekki sniðug þróun. ![]() Ef ég man rétt var fyrir nokkrum árum síðan hætt að skrá árgerðir nýrra bíla sem skráðir voru hjá Bifreiðaskrá (Umferðarstofa í dag). Ég man ekki nákvæmlega af hverju þessu var hætt en það virðist greinilega vera söluaðilum til hagsbóta og ekki kaupendum. Hvað segið þið um svona, ætli það sé mikið um þetta hér? Og hvaða skoðanir hafið þið á þessu? Er þetta kannski bara vitleysa í mér að finnast þetta skrítið? ![]() |
Author: | bjahja [ Tue 29. Apr 2003 22:57 ] |
Post subject: | |
Minn er framleiddur 96 en er skráður sem 97. Mér finnst þetta frekar asnalegt |
Author: | hlynurst [ Tue 29. Apr 2003 23:49 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki svona út í hinum stóra heimi? Ég er sammála að framleiðsluár ætti að tákna árgerðina, en það er þá hætta að bílaumboðin eru að tapa miklu á að eiga bíla á lager og ætli það sé ekki þess vegna þetta sé svona í dag. ![]() |
Author: | Haffi [ Wed 30. Apr 2003 00:25 ] |
Post subject: | |
Bjarni þinn er framleiddur svo seint á árinu 96 þannig að þinn er 97 en minn hallast meira í það að vera 96 heldur en 97 þó hann hafi komið á götuna 97 ![]() |
Author: | Kull [ Wed 30. Apr 2003 09:21 ] |
Post subject: | |
Minn var framleiddur í júní '91 og var skráður í september '91. Mig minnir að hann hafi verið kallaður '92 módel þegar ég keypti hann en ég segi alltaf '91. |
Author: | bebecar [ Wed 30. Apr 2003 09:55 ] |
Post subject: | |
Ég held að þetta skipti ekki öllu máli, ég alalvega tek ekkert mark á árgerðarbullinu. það eina sem skiptir máli er framleiðsluárið - annars færðu tóma steypu út úr meðalakstri og viðmiðunarverðum. Það er ekki hægt að bera saman neinar tölur nema nota framleiðslu árið- reyndar notar maður framleiðsludaginn!!! En þetta er bara eitt í viðbót sem kaupendur verða að vara sig á. |
Author: | gstuning [ Wed 30. Apr 2003 10:22 ] |
Post subject: | |
Blæjan var smíðaður Sept ´86 en segist vera ´87 en í skráningarskírteininu þá segist hann vera 2000 árgerð ![]() Mjög teygjanlegt |
Author: | íbbi [ Wed 30. Apr 2003 10:54 ] |
Post subject: | |
stundum eru bílar smíðaðir árið blabla sem næsta árgerð, oft er viðmiðið september og koma bílaframleiðendur með bílana um haustið sem eru framleiddir sem model næsta árs.. maximan mín er skráð seint í des 96 og er 97 model, |
Author: | Þórir [ Wed 30. Apr 2003 11:34 ] |
Post subject: | Árgerðir |
Það var lagabreyting varðandi þetta mál fyrir ca. 4-5 árum og reglurnar eru þannig í dag að bíllinn er skráður sú árgerð þegar bíllinn er nýskráður hérna á klakanum, eða öllu heldur getur innflytjandi látið gera það. Ef ég man þetta rétt. Annars er þetta virkilega slæmt þar sem eitt ákveðið umboð lék þann leik að kaupa hingað bíla sem ekki seldust í Evrópu og voru búnir að standa á hafnarbökkum þar í eitt til tvö ár. Þegar hingað komnir voru þeir skráðir. td. 2003 módel og þá var keypt í þá fjölspeglaljós o.s.frv. af þeim hlutum sem hafði verið breytt frá framleiðsludegi. Þarna var semsagt verið að breyta bílunum þannig að þeir litu út fyrir að vera td.2003 en voru í raun 2001 módel. Auðvitað er þetta góða umboð ekki hátt skrifað hér á landi og er blessunarlega ekki tengt okkar góðu vögnum. Kveðja. |
Author: | bebecar [ Wed 30. Apr 2003 12:12 ] |
Post subject: | |
Og hvaða umboð var þetta? |
Author: | Þórir [ Wed 30. Apr 2003 12:59 ] |
Post subject: | Hmmm |
Það er auðvitað ekki gott að vera með svona alvarlegar ásakanir en ég hef þetta eftir mjög traustum heimildum. Þetta umboð er með þýska eðalvagna en ekki BMW, býður þá upp á Suður Kóreskar bifreiðar. Enough said. |
Author: | bebecar [ Wed 30. Apr 2003 14:00 ] |
Post subject: | |
Hehe... ok "það" umboð ![]() |
Author: | morgvin [ Wed 30. Apr 2003 14:06 ] |
Post subject: | |
Og ég spyr hvaða umboð er þetta ? |
Author: | Heizzi [ Wed 30. Apr 2003 14:16 ] |
Post subject: | |
morgvin, come on... umboð fyrir þýska eðalvagna annars vegar og kóreskt drulludrasl hins vegar. Ég skal gefa þér hint, það byrjar á "Bílabúð" og endar á "a" ... ![]() |
Author: | morgvin [ Wed 30. Apr 2003 14:50 ] |
Post subject: | |
ha... ekki ertu að tala um **usso og **rche umboðið á íslandi... getur ekki verið hann *enni er heiðarlegur maður sem mokar inn peningum með því að flytja **orche inn og útúr landi. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |