Hvernig er það með skráningar á árgerðum á bílum hér á klakanum..
Er það ekki orðið ansi teygjanlegt hugtak þegar bíll sem er framleiddur 07/1998 er seldur hér sem árgerð 2000? Kannski er það bara ég en mér finnst þetta ekki sniðug þróun.

Söluaðilinn gefur þá skýringu að bíllinn hafi ekki verið skráður hér á götuna fyrr en um mitt ár 2000. Varla fór það bílum vel að standa óhreyfður í 2 ár? Ef viðmiðunarverðið hjá Bílgreinasambandinu (jájá, það er oft ekki að marka það og eingöngu til viðmiðunar en eitthvað verður maður jú að miða við) er skoðað fyrir þennan tiltekna bíl þá munar rúmum 800 þúsundum á því hvort bíllinn er skráður 07/1998 eða 07/2000.
Ef ég man rétt var fyrir nokkrum árum síðan hætt að skrá árgerðir nýrra bíla sem skráðir voru hjá Bifreiðaskrá (Umferðarstofa í dag). Ég man ekki nákvæmlega af hverju þessu var hætt en það virðist greinilega vera söluaðilum til hagsbóta og ekki kaupendum.
Hvað segið þið um svona, ætli það sé mikið um þetta hér? Og hvaða skoðanir hafið þið á þessu? Er þetta kannski bara vitleysa í mér að finnast þetta skrítið?
