bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nokkrar þjónustusögur um B&L https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1330 |
Page 1 of 2 |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 10:20 ] |
Post subject: | Nokkrar þjónustusögur um B&L |
1. Það fór loftpúði í bílnum mínum, þegar hann var kyrrstæður inni í bílskúr og ég var á leiðinni útúr honum. Ég talaði við þá í B&L og þeir vildu ekkert gera fyrir mig þar sem að bíllinn var ekki lengur í ábyrgð og líka afþví að hann var ekki innfluttur af umboði. Ég hringdi í BMW í þýskalandi og þeir sögðu þetta frekar óvanalegt en sögðu að þeir myndu tala við B&L og það yrði fundin góð lausn til að koma til móts við mig. Þegar ég hringdi síðar í B&L var einhver stjóri sem ég man ekki hvað heitir, alveg arfavitlaus, hann hefur s.s verið skammaður. Hann vildi samt ekkert gera fyrir mig, ekki einu sinni gefa mér afslátt af nýjum loftpúða sem að mig minnir að kosti 120þ (+36þ fyrir tölvu sem þeir vildu skipta um). Ég hringdi í fyrirtæki í bandaríkjunum sem að voru svo nice að selja mér nýjan loftpúða sem að tók mig 4 daga að fá og kostaði 28þúsund. 2. Ég var að tala við konu sem að á silfurlitaða 330ci bílinn. Hann er tveggja ára gamall og það fór í honum sjálfskiptingin. Það er búið taka ef ég man rétt 3vikur að fá nýjan og hann er ekki enn kominn, og á meðan fékk hún lítinn Renault, því þeir gátu ekki látið hana fá bmw. 3. Ég bað B&L um að setja nýja loftpúðan í, skipta um spindilkúlur, skipta um aircondition reim, skipta um öxulhosu og stilla topplúguna. Þeir voru 2daga að byrja á honum og svo fékk ég hann á þriðja degi. Þá rukkuðu þeir um tvo tíma fyrir að skipta um spindilkúlur og Loftpúða en rukkuðu svo tíma fyrir það að þeir áttu ekki öxulhosu (svo var í góðu lagi með hosuna) tíma fyrir það að það er ekki hægt að stilla topplúguna (uppgötvaði svo sjálfur að það eru tvær rær sem þú losar), rukkuðu tíma fyrir að það vantaði strekkjara í airconditionið (gátu ss ekki lagaða það) þannig að reikningurinn hljómaði upp á 30þ fyrir vinnu. 4. Lét þá tjekka á hvað það væri sem að myndaði víbringshljóð þegar ég beygði til hægri harkalega. Þeir vildu meina að það væri stýrismaskína sem að kostar 168þ ný. Ég komst svo sjálfur að því að þetta væri mótorpúði sem að kosta tveir 7þ ég hef annars ekkert á móti B&L, þar sem þeir eru með umboð fyrir bestu bíla í heimi. BMW (fyrir þá sem að héldu að ég var að meina Hyundai, ættu ekki að vera meðlimir að þessum klúbbi ![]() Kunnið þið fleiri sögur? |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 10:23 ] |
Post subject: | |
Þeir hafa samt verið mjög duglegir við að redda mér þeim varahlutum sem ég panta. |
Author: | bebecar [ Fri 25. Apr 2003 10:37 ] |
Post subject: | |
Mín reynsla af B&L er bara góð. Ég hef fengið óaðfinnanlega þjónustu í varahlutadeildinni og allastaðar er mér vel sinnt nema þá kannski helst í notuðu bílunum. Þar virðast menn vera haldnir starfsleiða og undarlegum bílahroka (alltaf voða góðir með sig og sína bíla). Annars er ég á því að öll þessi umboð sem að eru að glíma við slæmt orðspor vegna þjónustu og fleira geti skellt skuldinni á lélega starfsmenn. Nær undantekningalaust eru þetta starfsmenn sem eru að skemma fyrir og vinna þvert á stefnu fyrirtækisins. Þeim verður einfaldlega að skipta út. |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 10:44 ] |
Post subject: | |
Það er alveg rétt. Mér finnst reyndar eins og B&L sé þessa dagana að hífa sig upp. Þeir eru að gera góða hluti þessa dagana. Ég hef ekkert við varahlutadeildina að segja, en verkstæðið er ekki ofarlega í huga hjá mér. En fyrstu samskipti mín við B&L voru þau að þeir voru með 520 bíl einu sinni til sölu sem mig langaði rosalega í. Ég bauð þeim 600þ í bílinn og þeir sögðu að ég gæti fengið hann, en það þyrfti fyrst að yfirfara hann á verkstæðinu, allt gott um það að segja, en ég fór uppeftir 3svar á viku í 2mánuði og alltaf var bíllinn "á leiðinni" á verkstæðið, og það endaði með því að þeir seldu hann öðrum á 580þ. Djöfull var ég svekktur. |
Author: | Gunni [ Fri 25. Apr 2003 10:53 ] |
Post subject: | |
Ég hef soldið verið að tala við þá í varahlutaversluninni uppá síðkastið og ég verð að segja það að þeir gera allt sem þeir geta til að veita góða þjónustu. Ég ef aldrei skipt við verkstæðið hjá þeim þannig að ég veit ekki hvernig þeir eru að standa sig. Við fáum nú líklegast túr um verkstæðið hjá þeim laugardaginn 3. maí ![]() |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 10:55 ] |
Post subject: | |
Já þetta verður spennandi. Eins og ég sagði þá eru þeir að gera fína hluti þessa dagana að mínu mati. |
Author: | Heizzi [ Fri 25. Apr 2003 10:56 ] |
Post subject: | |
Ég hef nú verið í töluverðu símasambandi við þá undanfarið, bæði á verkstæðinu og varahlutadeildinni og hef fengið mjög gott viðmót frá þeim. Þeir verkstæðinu hafa gefið mér góð svör og akkúrat þessa stundina eru þeir á varahlutadeildinni að panta fyrir mig rúðu. Hún á vera komin á þriðjudaginn, við skulum sjá hvort það gengur eftir ![]() Ef hún verður ekki komin þá verð ég alveg SNÆLDUVITLAUS og kem með hryllingssögur af hræðilegru þjónustu hjá B&L ![]() ![]() |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 11:00 ] |
Post subject: | |
rúðan þín kemur á réttum tíma, ég trúi ekki öðru. Vantar þig ekki rúðu vegna innbrots? hvaða rúða var það sem var brotin? |
Author: | Heizzi [ Fri 25. Apr 2003 11:03 ] |
Post subject: | |
Þetta er hliðarrúðan frammí bílstjóramegin |
Author: | Heizzi [ Fri 25. Apr 2003 11:04 ] |
Post subject: | |
jú vegna innbrots |
Author: | gstuning [ Fri 25. Apr 2003 11:29 ] |
Post subject: | |
Ég fór í B&L um daginn að leita að pluggi fyrir MAF í bílinn hans stefáns, Varahluta strákarnir fundu bara plug sem ætti að virka en sagði mér að checka við verkstæðið þeir ættu kannski svoleiðis eða gætu betur hjálpað, Svo fór ég þar og talaði við einhvern BMW virkja og hann var voða fínn, mann ekki hvað hann heitir, ég hélt honum á spjalli um vanos-ið mitt og þetta plug í alveg 20mín og hann var frekar forvitin að sjá S50B30 vélina og það dót, Ég held að það sem er að gerast er að það er einn eða tveir sem eru að skemma fyrir heildinni, ég hef bara lent í góðum BMW virkjum þarna og það eru bara 3 eða 4, þannig að 1 hlítur að vera skemmdur, og hann gæti verið að skemma allt reputation fyrir B&L. |
Author: | Propane [ Fri 25. Apr 2003 11:37 ] |
Post subject: | |
Finnum út hvar hann á heima. ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Fri 25. Apr 2003 12:36 ] |
Post subject: | |
Heizzi wrote: Þetta er hliðarrúðan frammí bílstjóramegin ég get nú lánað þér rúðu þangað til ef þú villt.
|
Author: | Haffi [ Fri 25. Apr 2003 13:36 ] |
Post subject: | |
Ég hef ekkert nema gott um B&L að segja btw klukkan hjá mér er leet! Þið hafið bara lent á þessu eina skemmda epli! |
Author: | Heizzi [ Fri 25. Apr 2003 15:39 ] |
Post subject: | |
328 touring wrote: ég get nú lánað þér rúðu þangað til ef þú villt.
Ég þakka boðið, en þetta fer nú að styttast þannig að ég bíð bara rólegur. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |