Ég fór niðrá löggustöð í kópavogi í matnum mínum áðan til að endurnýja
ökuskírteinið mitt. Ég fór og talaði við einhverja gamla konu þarna inni
og sagði henni að ökusírteinið mitt væri að renna út þannig að ég þyrfti
að sækja um nýtt byrjun samtalsins fór ca svona fram:
Ég: "Góðann daginn, ég þarf að endurnýja ökuskírteinið mitt."
Gamla konan: "Já."
Smá bið.
Ég: "Geri ég það hérna hjá þér eða ?"
Gamla konan: "Já."
Smá bið.
Ég: "Fæ ég þá blað hjá þér eða?"
Gamla konan: "Já."
Örlítið lengri bið.
Ég: "Ætlaru þá að láta mig fá blaðið.
Gamla konan: "Já."
Gamla konan tegir sig undir borðið og nær í blað handa mér og segir
Gamla konan: "Svo þarftu að fara í ökumat og koma með nýja mynd."
Ég hugsa mig aðeins um og reyni að átta mig á því sem hún er að segja
og spyr síðan.
Ég: "Afhverju þarf ég að fara í ökumat ?"
Gamla konan: "Þetta eru nýjar reglur sem tóku gildi um áramót og fyrst
að þú ert með punkta þá færðu aftur bráðabyrgðaskírteini."
Ég: "Afhverju þarf ég að fá bráðabyrgðaskírteini ? Ég er búinn að vera
með svoleiðis skírteini núna tvisvar í röð, ég ætti að fá fullgilt ökuskírteini
í þetta skiptið."
Gamla konan: "Já, nei þú átt að fá bráðabyrgðaskírteini aftur í tvö ár."
Eftir þetta man ég ekki orðaskipti okkar nákvæmlega ég varð dáldið
æstur einsog vill gerast en allavegana eftir smá rifrildi og ég að hóta
öllu illu þá drullaði gamla konan loksins út úr sér að ég fengi ekki
bráðabyrgðaskírteini (whut!) heldur fullnaðar þetta hefði bara átt við ef
ég hefði fengið punkta á þetta skírteini ég væri bara með punkta á
skírteininu sem ég var með á undan þessu.
En allavegana ég þarf að fara í ökumat hjá ökukennara sem kostar
einhvern pening síðan þarf ég að láta taka nýja passamynd af mér
útaf því að ég má ekki nota gömlu plús það að borga 3500 kall fyrir
nýtt skrírteini.
Núna er ég búinn að borga 9.500 krónur fyrir þrú lítið plast kort
mér finnst þetta dáldið gróf og ég sé svo mikið eftir þeim degi þegar ég
missti prófið ég hefði ekkert átt að hægja á mér og stoppa fyrir lögguni
bara láta vaða áfram !

löggan hefði aldrei náð mér.
