Page 1 of 1

Vantar hjálp varðandi bílamál ! ma læsa þessum þræði

PostPosted: Thu 14. Jul 2005 23:02
by Elnino
Sælir kraftsmenn.

Núna þarf ég hjálp frá ykkur Bimma-nörrunum :wink:

Eg er að pæla í þessum bíl

http://bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&B ... _ID=200461

Er þetta rétt verð fyrir þennan bíl?

Eru IA ekki ssk? en þessi er bsk (vill hafa þá bsk) gæti þetta verið villa eða ?
Er mikil bilanatíðni á þessum bílum á þessum aldri og er dýrt að reka þetta???

Hvað gæti eg hugsanlega fengið bílinn á stgr 800??

Með von um skjót svör og fyrirfram þakkir :)

PostPosted: Thu 14. Jul 2005 23:18
by Lindemann
annaðhvort er þetta bara 318i eða hann er ssk
ég veit ekki með verðið, en ég myndi ekki kaupa svona bíl á tæpan 800þús kall því það er hægt að fá svo margt meira spennandi fyrir minni pening.

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 03:13
by Valdi-
Ég tek undir með Lindemann og jú hann er sjálfsskiptur ef hann er iA.

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 14:33
by Elnino
Bíllinn er seldur :cry:

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 14:50
by Eggert
piff, ekkert að væla það þó hann sé seldur.
Með 800 kall í vasanum geturu gert góð kaup. Hafðu það í huga að ef það er sett 890 á bíl á bílasölu, þá er það yfirleitt því bílasalarnir vilja lenda sölunni í um 800 þúsundin. Ég gæti ekki sofið rólega ef ég hefði boðið og staðgreitt 800 þúsund fyrir bíl sem er pottþétt hægt að ná neðar.

Og afhverju viltu 4cyl BMW? Ég segi go for allavega 6 cylindra. Bæði auðveldir í sölu og eyða litlu meira ef eitthvað er.

Afhverju viltu þrist? Eitthvað sem þú sækist þar í frekar en t.d. fimmu?

Mundu allavega að með 800 þúsund kall í vasanum geturu gert góð kaup, bara vera þolinmóður og bíða eftir rétta tækifærinu.

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 16:15
by Einsii

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 17:00
by Elnino
eg er í skóla og get ekki látið það eftir mér að kaupa mér stóran BMW .. fæ þá frekar bara BMW-inn hja mömmu og pabba í það :wink:

Eg er bara að leita mér af vel með förnum BMW, ekki útspóluðum, helst beinskiptum og lítið eknum fyrir ca 8-900 þúsund

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 17:25
by oskard
Afhverju ætti að læsa honum ?

PostPosted: Fri 15. Jul 2005 20:57
by Eggert
Sko, hvort sem bíllinn sé ekinn 50 eða 150 skiptir eginlega ekki máli... fer soldið eftir viðhaldi í gegnum tíðina.
Svo er mín 'stóra' fimma að eyða 11.6(mældi í gær) ltr á 100km, svo þú þarft ekkert endilega að forðast fimmur vegna eyðslu. Mín reynsla er sú að þeir eru meiri 'stykki' heldur en þristar.

Beinskipt fimma, nánast hvaða árg. sem er, er bara skemmtilegur akstursbíll. Ef ég hefði þennan pening í höndunum þá myndi ég reyna að falast eftir hvítu fimmuni á akureyri.. með rauða ((((klám)))) leðrinu.

Ertu búinn að athuga með þennan?
Eflaust hægt að slá soldið af honum og gera góð kaup. Öflugur bíll sem eyðir tiltölulega litlu, er með topplúgu og beinskiptur. Virðist ágætur, þess vert að skoða.

PostPosted: Mon 18. Jul 2005 00:48
by Elnino
oskard wrote:Afhverju ætti að læsa honum ?


því að eg bað um álit á þessum bmw sem eg var að skoða

En svo komu fleiri og ráðlögðu mér með hina og þessa bíla og eg þakka þeim kærlega fyrir það :D

Eg sá hvítu fimmuna með rauða leðrinu var soldið að spá í henni :wink:

Annars held eg leit minni áfram.....

PostPosted: Mon 18. Jul 2005 06:03
by Valdi-
Já gangi þér vel kallinn :)