bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Ertu ekki að grínast!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10494
Page 1 of 1

Author:  mattiorn [ Thu 12. May 2005 20:33 ]
Post subject:  Ertu ekki að grínast!!

Þegar ég kom að bílnum mínum áðan sá ég að annar kastarinn var horfinn.... Honum var reyndar ekki stolið heldur var hann búinn að vera frekar laus og svo núna bara horfinn.... Hvað gera bændur í því?? Ef einhver á svona kastara þá má hann alveg láta mig vita
Image

P.s þetta er stuðarinn vinstra megin þegar þú horfir á bílinn...

Author:  Kristjan [ Thu 12. May 2005 20:36 ]
Post subject: 

Þú getur náttúrulega bara sjálfum þér um kennt, það er algjört möst að tryggja að allt svona utaná bílnum sé fast á sínum stað. Ég geri ráð fyrir því að þú verðir að kíkja í TB eða B&L, ef ég leyfi mér að giska þá ætti svona kastari að kosta þig svona lágmark 20 þúsund kjell

Author:  moog [ Thu 12. May 2005 20:45 ]
Post subject: 

Ég á svona kastara handa þér... færð hann á 2 þúsund kjell

http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?uname=moog&myndnafn=kastari.jpg

Author:  mattiorn [ Thu 12. May 2005 22:29 ]
Post subject:  snilld

Snilld, ætla reyndar að fara rúnt núna á eftir og athuga hvort að kvikindið leynist ekki einhverstaðar í kantinum, en annars kaupi ég pottþétt þennan af þér. :wink:

Author:  Henbjon [ Thu 12. May 2005 22:35 ]
Post subject: 

Gott að eiga einn til vara :wink: .

Author:  mattiorn [ Thu 12. May 2005 23:08 ]
Post subject: 

mooq, er þinn með kristalbotni? þurfa þeir ekki að vera eins týpa eða??

Author:  moog [ Fri 13. May 2005 12:48 ]
Post subject: 

Ég held að hann sé bara með svona "krómbotni" ef það segir þér eitthvað. Ég þarf að finna hann hjá mér og kíkja á hann betur. Hann er allaveganna eins og sá sem er á mínum ´94 bíl.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/