Danni wrote:
En ég er samt ekkert að djóka, ef að fíkniefnalöggan stoppar þig hérna í Keflavík og þú bannar henni að leita í bílnum þá bara plantar hún á þig fíkniefni svo hún getur tekið bilinn og strípað hann! Eða það hef ég heyrt.. aldrei lent í neinu svoleiðis enda hefur bara verið leitað á mér og í bílnum einusinni og ég leyfði þeim það alveg... sagði þeim bara að þeir þyrftu að loka skottinu sjálfir(var á leiðinni heim að laga það, það var farið að opnast bara á sjálfu sér við hverja holu!)
Ég vil samt taka það fram að ég hef aldrei prófað fíkniefni og ég hangi ekki með neinu "grunsamlegu" fólki.
Nei halló halló.
Ég verð nú bara að segja hætta að grafa tími. Það er verulega gróft að segja það að lögreglan sé að planta fíkniefnum í bílinn hjá saklausu fólki.
Ég þekki þessi mál ekki persónulega, en er afar vantrúaður á að svona viðgangist á Íslandi.
Svo segir þú að það hafi einungis einu sinni verið leitað á þér í tékki. Mér fannst eins og þetta væri alltaf að gerast hjá þér miðað við það sem þú skrifaðir áður, þess vegna værir þú svona pirraður á þessu. Ef þetta gerðist bara einu sinni.. af hverju þá svona mikinn pirringur???


