Vara við spjallverja hér á kraftinum! - Könnun

Hér skal spjalla um BMW.

Á að banna Uvels?

132
84%
Nei
26
16%
 
Total votes : 158

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Mazi! » Thu 14. May 2009 10:41

Flott að þetta sé búið,


Mæli samt eindregið með því að þið stjórnendur græjið reglur um kaup og sölu sem virka og er farið eftir til að kljá svona aula einsog Uvis Cevers
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby GunniT » Thu 14. May 2009 12:42

með þessu banni er ENGAN veginn hægt að ná í kauðan... ekki sniðugt
Gunni 8663170

BMW M5 Anthrazit Metallic
User avatar
GunniT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2074
Joined: Thu 11. Mar 2004 18:20
Location: Keflavík

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby arnibjorn » Thu 14. May 2009 12:43

GunniT wrote:með þessu banni er ENGAN veginn hægt að ná í kauðan... ekki sniðugt

Getur reynt á l2c, held að það sé ekki búið að banna hann þar ennþá.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby saemi » Thu 14. May 2009 14:25

Stanky wrote:Hvað þarf hann að svíkja marga hérna inni áður en hann verður bannaður?

Er ekki bara hægt að segja "Hann verður að svíkja 10 manns - nú nema einn af top 10 póstmestu aðilunum lendi í honum (fyrir utan Angelic0-) þá verður hann bannaður asap."

Skil ekki afhverju það þarf að hlífa þessum manni.


Varðandi það hvort það á að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallinu er umdeilt. Ég skil það alveg og virði þá skoðun þeirra sem eru ekki sammála mér. Það væri fínt ef aðrir gerðu það sama á móti. Ég vil meina að á meðan fólk brýtur ekki af sér á spjallinu, þá eigi ekki að banna það á spjallinu. Annað finnst mér óréttlátt. Finnst það eins og ég sagði áður, að refsa á röngum stað. Hitt er annað mál að kannski er hægt að búa þannig um hlutina að t.d. hafi hann ekki aðgang að "til sölu" dálknum, eða að í hvert skipti sem hann auglýsir eitthvað sé fólk varað við því að hann geti verið erfiður. Ég vil meina að hann fari úr þessu eitthvað annað og þá sé enn erfiðara fyrir fólk að vara sig á honum eða átta sig á hvern er við að eiga. Hann mun halda áfram að versla með dót í BMW!

Það er ekkert verið að hlífa einum né neinum á þessu spjalli.

Mazi! wrote:Þetta sem þú ert að segja er ekkert nema ein steik :lol:

Að sjálfsögðu á að banna menn af spjallborðum þegar þeir eru að nýta sér það spjallborð til slæmra viðskipta

Einnig sniðugt að gefa viku - mánaða bönn fyrir svona og punkta að eilífðarbanni

Flest spjallborð sem ég hef stundað einsog dæmi: http://vaktin.is ef einhver svíkur viðskipti þarna þá er tekið á því! með banni frá umræðum í vissann tíma og ef ítrekað þá væri það eilífðarbann

Byggir upp "aga" :wink:


Ég er ekkert að segja neina steik. Ef þú skilur ekki það sem ég er að fara, þá er það þitt mál. En rök mín eru alveg jafn gild og þín.

Mér finnst ekkert sjálfsagt við að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallborðum. Þessi aðili er ekki alltaf að svíkja og pretta. Hann hefur líka staðið við orð sín í fullt af tilvikum, þó svo að margt hafi ekki staðist sem hann hefur lofað. Það má vera að það sé leiðin sem verður valin, en ég myndi frekar vilja reyna aðrar leiðir fyrst, eins og t.d. að banna hann í "til sölu" dálknum ef hægt er að sanna á hann svik.

Geirinn wrote:Sæmi, þetta er MIÐILLINN sem hann notar til að komast í tæri við fólk sem hann er að svíkja.

Viljum við að BMWKraftur sé opinn öllum sem hafa áhuga á að svíkja fólk sem vantar bílavarahluti ? Hvaða skilaboð ertu að senda hérna ?

Þarf hann að svíkja ÞIG til að þú bannir hann ?


Er ekki betra að hafa hann á þessum miðli og vita af honum heldur en að lenda í honum á öðrum miðlum og vera óviðbúinn þar? Að sjálfsögðu viljum við ekki hafa fólk hér inni sem svíkur annað fólk. En það er ómögulegt að útiloka svoleiðis fólk úr þessum heimi, því miður. Það verður alltaf hér inni. Er þá ekki betra að hafa hann hér í gjörgæslu heldur en að hafa hann fyrir utan.

Ég er ekkert að senda nein skilaboð, ég er að segja mína skoðun og það er ekkert dulið þar.

Hann hefur svikið mig bara svo þú vitir það. Hann skuldaði mér 80.000.- krónur í 3 mánuði. Ég leysti það mál í gegnum pm á kraftinum, með þolinmæði og góðu.


Mazi! wrote:Flott að þetta sé búið,
Mæli samt eindregið með því að þið stjórnendur græjið reglur um kaup og sölu sem virka og er farið eftir til að kljá svona aula einsog Uvis Cevers


Við sem stjórnendur getum ekki gert reglur sem virka þannig að fólk geti ekki svikið og prettað. Það er ómögulegt fyrir okkur að setjast í dómarastól og vera einhver lögregla hér og passa upp á slíkt. Hver og einn verður að passa sig í viðskiptum. En að sjálfsögðu eru ákveðnar reglur sem gilda á þessu spjallborði og við reynum að framfylgja þeim.

GunniT wrote:með þessu banni er ENGAN veginn hægt að ná í kauðan... ekki sniðugt


Ég er algjörlega sammála.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby arnibjorn » Thu 14. May 2009 14:35

Ég vil allavega að hann sé bannaður. Það er vitað mál að hann er hérna inná að selja allskynshluti og er viljandi að svíkja kraftsmeðlimi.

Og Sæmi ef þú vilt afbanna hann þá er það alveg í lagi mín vegna.

Bara leiðinlegt ef að nýjir meðlimir skrá sig kannski bara til að óska eftir einhverjum hlut og svo mætir kannski Uvels á svæðið og sér tækifæri til að svíkja einhvern.
Nýr meðlimur hefur ekki hugmynd um hvernig gaur Uvels er og sér kannski aldrei neinar viðvaranir :?
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Mazi! » Thu 14. May 2009 14:46

saemi wrote:
Stanky wrote:Hvað þarf hann að svíkja marga hérna inni áður en hann verður bannaður?

Er ekki bara hægt að segja "Hann verður að svíkja 10 manns - nú nema einn af top 10 póstmestu aðilunum lendi í honum (fyrir utan Angelic0-) þá verður hann bannaður asap."

Skil ekki afhverju það þarf að hlífa þessum manni.


Varðandi það hvort það á að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallinu er umdeilt. Ég skil það alveg og virði þá skoðun þeirra sem eru ekki sammála mér. Það væri fínt ef aðrir gerðu það sama á móti. Ég vil meina að á meðan fólk brýtur ekki af sér á spjallinu, þá eigi ekki að banna það á spjallinu. Annað finnst mér óréttlátt. Finnst það eins og ég sagði áður, að refsa á röngum stað. Hitt er annað mál að kannski er hægt að búa þannig um hlutina að t.d. hafi hann ekki aðgang að "til sölu" dálknum, eða að í hvert skipti sem hann auglýsir eitthvað sé fólk varað við því að hann geti verið erfiður. Ég vil meina að hann fari úr þessu eitthvað annað og þá sé enn erfiðara fyrir fólk að vara sig á honum eða átta sig á hvern er við að eiga. Hann mun halda áfram að versla með dót í BMW!

Það er ekkert verið að hlífa einum né neinum á þessu spjalli.

Mazi! wrote:Þetta sem þú ert að segja er ekkert nema ein steik :lol:

Að sjálfsögðu á að banna menn af spjallborðum þegar þeir eru að nýta sér það spjallborð til slæmra viðskipta

Einnig sniðugt að gefa viku - mánaða bönn fyrir svona og punkta að eilífðarbanni

Flest spjallborð sem ég hef stundað einsog dæmi: http://vaktin.is ef einhver svíkur viðskipti þarna þá er tekið á því! með banni frá umræðum í vissann tíma og ef ítrekað þá væri það eilífðarbann

Byggir upp "aga" :wink:


Ég er ekkert að segja neina steik. Ef þú skilur ekki það sem ég er að fara, þá er það þitt mál. En rök mín eru alveg jafn gild og þín.

Mér finnst ekkert sjálfsagt við að banna fólk sem er erfitt í viðskiptum á spjallborðum. Þessi aðili er ekki alltaf að svíkja og pretta. Hann hefur líka staðið við orð sín í fullt af tilvikum, þó svo að margt hafi ekki staðist sem hann hefur lofað. Það má vera að það sé leiðin sem verður valin, en ég myndi frekar vilja reyna aðrar leiðir fyrst, eins og t.d. að banna hann í "til sölu" dálknum ef hægt er að sanna á hann svik.

Geirinn wrote:Sæmi, þetta er MIÐILLINN sem hann notar til að komast í tæri við fólk sem hann er að svíkja.

Viljum við að BMWKraftur sé opinn öllum sem hafa áhuga á að svíkja fólk sem vantar bílavarahluti ? Hvaða skilaboð ertu að senda hérna ?

Þarf hann að svíkja ÞIG til að þú bannir hann ?


Er ekki betra að hafa hann á þessum miðli og vita af honum heldur en að lenda í honum á öðrum miðlum og vera óviðbúinn þar? Að sjálfsögðu viljum við ekki hafa fólk hér inni sem svíkur annað fólk. En það er ómögulegt að útiloka svoleiðis fólk úr þessum heimi, því miður. Það verður alltaf hér inni. Er þá ekki betra að hafa hann hér í gjörgæslu heldur en að hafa hann fyrir utan.

Ég er ekkert að senda nein skilaboð, ég er að segja mína skoðun og það er ekkert dulið þar.

Hann hefur svikið mig bara svo þú vitir það. Hann skuldaði mér 80.000.- krónur í 3 mánuði. Ég leysti það mál í gegnum pm á kraftinum, með þolinmæði og góðu.


Mazi! wrote:Flott að þetta sé búið,
Mæli samt eindregið með því að þið stjórnendur græjið reglur um kaup og sölu sem virka og er farið eftir til að kljá svona aula einsog Uvis Cevers


Við sem stjórnendur getum ekki gert reglur sem virka þannig að fólk geti ekki svikið og prettað. Það er ómögulegt fyrir okkur að setjast í dómarastól og vera einhver lögregla hér og passa upp á slíkt. Hver og einn verður að passa sig í viðskiptum. En að sjálfsögðu eru ákveðnar reglur sem gilda á þessu spjallborði og við reynum að framfylgja þeim.

GunniT wrote:með þessu banni er ENGAN veginn hægt að ná í kauðan... ekki sniðugt


Ég er algjörlega sammála.



þið getið jú svo sannarlega stoppað fólk í að selja hérna hefði haldið að það væri nokkuð augljóst!

það að leyfa manninum að selja áfram er bara til þess að láta hann pretta fleiri nýgræðinga

og það að banna hann frá spjallinu alveg er bara fínt, sé ekki neina þörf á að hafa svona drasl fólk í kringum okkur


MÍN SKOÐUN.
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Einarsss » Thu 14. May 2009 15:00

Hvað með að setja upp feedback forum? þar sem kaupandi getur greint frá ánægjulegum kaupum eða ekki svo ánægjulegum kaupum?

Finnst að það ætti í raun að vera þar sem spjallið er að bjóða uppá möguleikann á að kaupa og selja hluti þó svo að þau viðskipti eru ekki á ábyrgð kraftsins. Þá gæti fólk amk rennt yfir það áður en það ákveður að treysta einhverjum ókunnugum gaur útí bæ fyrir fyrirframgreiðslu á hlut.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Maddi.. » Thu 14. May 2009 15:01

Það er ekki eins og þessi náungi sé virkur meðlimur á spjallinu sem einhver eftirsjá verður af.
Eina sem hann gerir hér er að koma og scam'a fólk.
Til þess að hægt sé að stöðva það finnst mér bara sjálfsagt að banna hann frá þessu borði, sem er jú sá vettvangur sem hann nýtir undir þetta svindl sitt.
Flott að hafa hann bannaðan.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Geirinn » Thu 14. May 2009 15:05

Mér sýnist nú símanúmerið hjá kauða vera í umferð, einhver sagðist hafa séð bílinn hans o.s.frv.

Það er ekkert ómögulegt að finna hann þó að hann sé bannaður hér.

Mergur málsins er að koma í veg fyrir fleiri svik, þó það kosti það að fólk geti ekki sent manninum einkaskilaboð.

Það er ekki eins og hann geti ekki hunsað einkaskilaboðin eins og símtal, SMS, tölvupósta og hvað sem menn eru að reyna að gera til að ná sambandi við hann.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Mazi! » Thu 14. May 2009 15:11

Geirinn wrote:Mér sýnist nú símanúmerið hjá kauða vera í umferð, einhver sagðist hafa séð bílinn hans o.s.frv.

Það er ekkert ómögulegt að finna hann þó að hann sé bannaður hér.

Mergur málsins er að koma í veg fyrir fleiri svik, þó það kosti það að fólk geti ekki sent manninum einkaskilaboð.

Það er ekki eins og hann geti ekki hunsað einkaskilaboðin eins og símtal, SMS, tölvupósta og hvað sem menn eru að reyna að gera til að ná sambandi við hann.



Mjög sammála þessu,
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby DABBI SIG » Thu 14. May 2009 15:42

Eins og ég sagði alveg frá byrjun hefði átt að vera löngu búið að banna honum að AUGLÝSA hér... þ.e. hafa aðgang að öllu auglýsinga-tengdu hér á spjallinu.
Það að hann væri ennþá skráður á spjallið er held ég ekki að trufla menn. Sennilega bara betra ef eitthvað er til þess að geta náð í hann eins og áður hefur komið fram. Því oft eru einkaskilaboð það eina sem hann svarar í langan tíma.
Ég var t.d. í sambandi við hann í gegnum einkaskilaboð og það virkaði vel, því aldrei svaraði hann síma né sms. Nú get ég þetta ekki lengur og er að vona það besta að ég fái það sem mér var ætlað.

Hefði verið betra sem fyrsta skref í banninu að banna hann frá auglýsingunum en ekki öllu spjallinu!
Sammála Sæma að því leiti!
Last edited by DABBI SIG on Thu 14. May 2009 15:46, edited 1 time in total.
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image
User avatar
DABBI SIG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 377
Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Geirinn » Thu 14. May 2009 16:03

Eru virkilega svona margir hér sem hafa komið sér í þá stöðu að hafa greitt fyrir vöru án þess að fá hana samtímis ?

Þetta kemur mér mikið á óvart.

Ég myndi allavega áfellast sjálfan mig fyrir að hafa tekið þátt í svoleiðis þó að það réttlæti engan veginn þá stöðu sem komin er upp.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby Alpina » Thu 14. May 2009 16:10

það er eins og Uvis taki geðþótta ákvarðanir með það hverjir og afhverju viðskiptin ganga vel eða illa..

Margir hafa góða sögu af segja,, eeeeeeeeeeeeen

það virðist að neikvæð dæmi séu oftar til frásagnar en þær góðu,,

stóðst allt eins og stafur á bók hjá mér. :wink:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby bimmer » Thu 14. May 2009 17:12

Miðað við frammistöðu í viðskiptum við kraftsmenn á Uvels ekki að
vera undrandi yfir svona aðgerðum. Hefðu í raun átt að koma fyrr.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Vara við spjallverja hér á kraftinum!

Postby JonHrafn » Thu 14. May 2009 17:54

Uvels notaði kraftinn bara til að selja, engin eftirsjá. Þetta spjall hefur ákveðinn gæðastimpil á sér og bannið styrkir þann stimpil.

Varðandi að greiða fyrir vöru fyrirfram þá virðast íslendingar vera þannig, þeir treysta, ég hef selt þónokkra jeppaparta þar sem menn millifæra inn á mig áður en ég sendi af stað algerlega af eigin frumkvæði. Aldrei dytti mér í hug að biðja um það en svona erum við.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 20 guests

cron