bebecar wrote:
Reyndar er Maybach betur búin í svona græjum - en þetta eru jafn dýrir bílar og peningarnir á rollsinu fóru í hönnun á bílnum sjálfum en ekki í einhverjar græjur. T.d. er bara einn takki sem stillir hitastigið aftur í!
Maybach er í raun mikið breyttur S Benz en Rollsinn er nýr frá grunni og á lítið sameiginlegt við sjöuna - ég held að rolls menn hafi sett peninga þar sem þeir skipta mestu máli í hönnun á bílnum sjálfum í stað þess að nota ódýrari bíl sem grunn og fylla hann af græjum.
Rolls aðferðin finnst mér mun meira spennandi.
Maybach fyrir mig og það er EKKI vegna þess að ég sjái ekkert nema Benz, finnst bara Rollsinn of klossaður. Og annað, sem er heldur EKKI vegna þess að ég sjái ekkert nema (s) Benz, er ekki bara skýringin á því að Maybachinn er byggður á s Benz einfaldlega sú að það var búið að eyða miklu í góða hönnun - af hverju að finna þetta allt upp aftur?