Afhverju BMW? Hvernig beist þú á agnið?

Hér skal spjalla um BMW.

Postby blomqvist » Sat 03. Dec 2005 18:00

Hef ekki verið með mikla bíladellu hingað til.
Prófaði svo 530D í vetur og fékk við það smá Bmw dellu ... hef átt 3corollur, 1xAvensis, 1xSunny GTI, 1xGalant og 1xAccord um ævina :) ... styttist í að maður breyti til :wink:
Last edited by blomqvist on Sat 03. Dec 2005 19:51, edited 1 time in total.
blomqvist
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 59
Joined: Sat 03. Dec 2005 17:20
Location: Seltjarnarnes

Postby fart » Sat 03. Dec 2005 19:02

blomqvist wrote:Hef ekki verið með mikla bíladellu hingað til.
Prófaði svo 530D í vetur og fékk við það smá Bmw dellu ... hef átt 3corollur, 1xAvensis, 1xSunny og 1xAccord um ævina :) ... styttist í að maður breyti til :wink:


Þú hefur s.s. aldrei átt bíl :lol: :whip:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Logi » Mon 05. Dec 2005 00:00

Það var E21 323i (A4664) sem gerði það að verkum að mig langaði fyrst í BMW. Hann var þá mjög nýlegur og ég mjög ungur :lol:

Ég eignaðist svo þann bíl ca. 10 árum síðar 8)
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Dr. E31 » Mon 05. Dec 2005 03:19

Ég var eins og Ingvar, þoldi ekki BMW, en fyrir 3 árum kolféll ég fyrir 850i og ákvað það hvað sem það tæki að kaupa hann. Ætli ég hvafi ekki verið að lifa æskudrauminn með kaupunum, þegar ég sá svarta 850 bílinn (sem þáverandi umboð flutti inn) í notuðum bílum hjá B&L árið 1993, ég hafði þá aldrei sest inn í eins fágaðann og frammúrstefnulegann bíl áður.

Reyndar hefur BMW verið mikið í fjölskilduni hjá mér afi átti 196? árgerð af BMW sem ég hef ekki ennþá komist að hvaða typa það var, síðan átti hann E12 520 1974 árg. (held ég).
Frænka mín hefur átt tvo E30 318 1985ish og síðan E30 318 1989.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Mon 05. Dec 2005 08:42

Dr. E31 wrote:Ég var eins og Ingvar, þoldi ekki BMW, en fyrir 3 árum kolféll ég fyrir 850i og ákvað það hvað sem það tæki að kaupa hann. Ætli ég hvafi ekki verið að lifa æskudrauminn með kaupunum, þegar ég sá svarta 850 bílinn (sem þáverandi umboð flutti inn) í notuðum bílum hjá B&L árið 1993, ég hafði þá aldrei sest inn í eins fágaðann og frammúrstefnulegann bíl áður.

Reyndar hefur BMW verið mikið í fjölskilduni hjá mér afi átti 196? árgerð af BMW sem ég hef ekki ennþá komist að hvaða typa það var, síðan átti hann E12 520 1974 árg. (held ég).
Frænka mín hefur átt tvo E30 318 1985ish og síðan E30 318 1989.


Ég er líka með fetish fyrir ákveðnum gerðum bíla og E31 er hiklaust einn af vanmetnustu bílum sem þú getur fengið - I want one.

Ég man eftir svarta bílnum uppí umboði 1993, hann var ekki einu sinni sérlega dýr!!!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Chrome » Mon 05. Dec 2005 19:14

ég lýkt og margir aðrir leit BMW hornauga á sínum tíma hélt að þetta væru algerar bilana dollur...en svo tók ég einu sinni góðan rúnt á E32 750 fyrir félaga eftir að hann ákv. að skella í sig öllara og var þar með fallinn Image
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin
User avatar
Chrome
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1739
Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Location: Kópavogur

Postby mattiorn » Mon 05. Dec 2005 21:39

Það var þessum bíl að þakka að ég varð BMW fan... :)

Image

Úff... 8)
User avatar
mattiorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1908
Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Location: Akureyri

Postby Einsii » Mon 05. Dec 2005 21:52

Merkilegt þegar ég les yfir þetta og allir eru að tala um hvernig þeir prufuðu fyrsta bílinn eða sátu í. einhver upplyfun sem snéri þeim.

Ég aftur á móti man ekki eftir neinu eða get hugsað upp neina ástæðu fyrir því afhverju gamli 318is bíllinn var min fyrsti bíll..þekki svo reyndar lítið annað en BMW og hugsa að það breytist lítið á næstuni. en annars kannski það eina sem ég man eftir úr æsku sem tengir mig við bmw.
Var að labba með mömmu nokkura ára gamall og fann bíllykil á götuni sem mamma sagði mér að væri af BMW "rosalega fínir bílar" sagði hún ;)
Svo beið ég í marga daga með að hún gæti sýnt mér þannig bíl.. enda ekki mikið um þá hér á ak í þá dagana :)

En enívei.. þetta var mín væmna BMW saga, þó að ég tengi hana svosem ekkert endilega við það að ég hafi svo keypt mét BMW loksins þegar ég fékk prófið (vissi ekki af kraftinum, hafði aldrei keyrt BMW, hafði sáralítið tekið eftir BMW, enginn minna vina átti BMW, man ekki einusinni eftir að hafa setið í BMW) hver djöfullinn fékk mig í þetta ???
:P
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Kristjan PGT » Mon 05. Dec 2005 22:49

Þetta spjall hefur haft gífurleg áhrif á mig. En mér finnst (svo ég sé nú alveg hreinskilinn) eitthver status við bmw, fyrir utan að sjálfsögðu skemmtilega aksturseiginleika og fallega hönnun.

En ég hef ekki ennþá eignast einn slíka og ætli það skrifist ekki á hann pabba gamla. Hann er alltaf með þennan áróður "Yngri og minna keyrðan bíl" sem ég reyni eins og ég get að berjast á móti. En trúið mér, það kemur að þessu...maður dúndrar sér vonandi næst á E39 M5 ef fjárhagur leyfir :D
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Postby Einsii » Mon 05. Dec 2005 22:55

Kristjan PGT wrote:Þetta spjall hefur haft gífurleg áhrif á mig. En mér finnst (svo ég sé nú alveg hreinskilinn) eitthver status við bmw, fyrir utan að sjálfsögðu skemmtilega aksturseiginleika og fallega hönnun.

En ég hef ekki ennþá eignast einn slíka og ætli það skrifist ekki á hann pabba gamla. Hann er alltaf með þennan áróður "Yngri og minna keyrðan bíl" sem ég reyni eins og ég get að berjast á móti. En trúið mér, það kemur að þessu...maður dúndrar sér vonandi næst á E39 M5 ef fjárhagur leyfir :D

Spurðu pabba þinn hvað hann hefur tapað mikklu í afföll á bílunum sínum í gegnum árin ;)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Stefan325i » Mon 05. Dec 2005 23:34

mattiorn wrote:Það var þessum bíl að þakka að ég varð BMW fan... :)

Image

Úff... 8)



:oops:

Ég þakka falleg orð í garði að bílnum mínum, og vonandi ertu ánægður með gjörðir mínar sem aðild af þínum bílaáhuga.

Þú átt inni hjá mér rúnt.

Takk takk
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby mattiorn » Mon 05. Dec 2005 23:41

Hehe, já það væri kannski allt í lagi lífsreynsla.. :D
User avatar
mattiorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1908
Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Location: Akureyri

Postby Lindemann » Tue 06. Dec 2005 02:36

Ég veit eiginlega bara ekki hvaðan minn BMW áhugi kemur.... Ég hef alltaf verið með miklu bíladellu, en ég fór ekki að skoða BMW neitt að ráði með kaup í huga fyrr en eftir að ég fékk bílprófið og vissi í raun ekkert um þá.
Svo fór ég að stunda þetta spjall og skoða bíla sem voru í mínum verðflokki, var að skoða á meðan mikið af bílum af öðrum gerðum. BMW voru oftast dýrir miðað við árg. og akstur en það voru og eru fáir bílar sem er hægt að fá jafn vel útbúinn og góðan bíl fyrir lítinn pening.

Fyrir þann pening sem ég keypti minn á(sem er minn fyrsti BMW) hefði ég ekki getað fengið betur útbúinn bíl af annari tegund,,,,,,,,,nema þá einhvern haug.

Ég á ekki von á öðru en næstu bílar verði BMW, þakka þessu spjalli fyrir það.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Afhverju BMW? Hvernig beist þú á agnið?

Postby Danni » Wed 07. Dec 2005 02:22

bebecar wrote:Ég spurði svo sölumannin afhverju hann treysti 18 ára gutta fyrir svona dýrum bíl - þá tók hann skýrt fram að BMW (ekki bara umboðið) liti á alla sem framtíðar kúnna 8)


Sölumaðurinn í B&L leit ekki þannig á það þegar ég bað um að reynsluaka nýja M5 :lol:

Ég hef alltaf fílað BMW. Langaði alltaf í þannig sem minn fyrsta bíl en það var of dýrt fyrir mig. Ég fékk gefins 1,3 blöndungs Colt og útaf því hófst þessi þvílíka Colt della, fyrsta bílaást, þið skiljið (vonandi). En ég ákvað samt þegar ég fékk Coltinn að vera bara á honum og safna mér fyrir einhverju góðu eintaki af BMW og var alltaf að skoða E30 og E34 á netinu. Þeir sem mig langaði alltaf í voru of dýrir. Svo lenti ég í árekstri og keypti mér GTi Colt, og þá fór allur þessi peningur sem ég hafði safnað fyrir BMW að hverfa bara! Ég ætlaði að halda eins áfram að safna bara pening fyrir BMW en allt kom fyrir ekki. Coltinn bilaði og bilaði og bilaði og svo fékk ég mér annan, og hann bilaði og bilaði og bilaði þannig ég fékk mér aðra vél í hann, og aðra vél í hinn Coltinn líka. Þrjóskur? En já báðar þessar vélar biluðu, önnur meiraðsegja áður en ég náði að færa hana á milli bíla! Þá á endanum gafst ég upp og tók bara lán fyrir þessum æðislega E34 sem ég var búinn að skoða sjálfur í 2 vikur. Hafði bara samband við seljanda, sagðist vera með pening og að ég ætlaði að koma að kaupa hann! Gerði það svo og lífið hefur bara orðið betra eftir það :mrgreen:

Þess má til gamans geta að Lancerinn hans pabba bilaði einmitt á leiðinni til baka þegar ég var að sækja BMW-inn! Þá gjörsamlega missti ég allt mitt litla álit sem eftir var af Mitsubishi. Núna sit ég eftir með 4 bilaða mmc-a í innkeyrslunni sem er alveg of pökkuð og pabbi orðinn alveg snælduvitlaus! Er að rífa alla nema 1 sem pabbi, af öllum, bannaði mér að rífa eða selja því hann ætlar að gera hann upp og gefa bróður mínum hann! En með þessa mmca er engin von, bara henda þessu og byrja uppá nýtt með eitthvað sem er í lagi og er þess virði að eiga!
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby einsi » Wed 07. Dec 2005 16:06

ég vissi bara ekkert um bmw fyrr en stóri bróðir minn keypti sér e24 633 77árg. fyrir nokkrum árum og sá bíll kveikti bmw delluna mína. ég stefni á áð eignast bmw þegar ég fá bílprófið eftir 2 ár :D
einsi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Sat 18. Dec 2004 21:51

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests