Shit.
Heppnir að sleppa úr þessu.
Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
///M wrote:Raggi M5 wrote:Minnir að þetta er/var diesel bíll.
ég er búinn að muna það allveg síðan í pósti nr 2

Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
GTI-gutti wrote:Ég var einmitt á leiðinni heim úr vinnunni þegar ég mætti þessum tveimur bimmum til móts við álverið. Minnir að sá með angel eyes hafi verið með forrystuna ( man það þó ekki alveg ), fallegir bílar sýndist mér þegar ég mætti þeim.
Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurnesjum rannsakar nú hvort bílveltu á Reykjanesbraut í kvöld megi rekja til kappaksturs tveggja BMW bifreiða. Tvær bifreiðar óku á ógnarhraða í átt til Keflavíkur og var annarri þeirra ekið öfugu megin framúr bíl sem ók í sömu átt. Skömmu eftir framúraksturinn fór BMW bifreiðin útaf veginum og yfir tvær akreinar þar sem umferð kom á móti á tvöfaldri Reykjanesbrautinni á Strandarheiði. Bifreiðin hafnaði að lokum á hvolfi úti í móa. Tveir ungir menn sem voru í bílnum voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli þeirra reyndust minniháttar.
Sjónarvottur að slysinu segir að bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða og aðstæður á slysstað benda einnig til þess að svo hafi verið. Bifreiðin sem valt er mikið skemmd, ef ekki ónýt.
Zyklus wrote:Rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurnesjum rannsakar nú hvort bílveltu á Reykjanesbraut í kvöld megi rekja til kappaksturs tveggja BMW bifreiða. Tvær bifreiðar óku á ógnarhraða í átt til Keflavíkur og var annarri þeirra ekið öfugu megin framúr bíl sem ók í sömu átt. Skömmu eftir framúraksturinn fór BMW bifreiðin útaf veginum og yfir tvær akreinar þar sem umferð kom á móti á tvöfaldri Reykjanesbrautinni á Strandarheiði. Bifreiðin hafnaði að lokum á hvolfi úti í móa. Tveir ungir menn sem voru í bílnum voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli þeirra reyndust minniháttar.
Sjónarvottur að slysinu segir að bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða og aðstæður á slysstað benda einnig til þess að svo hafi verið. Bifreiðin sem valt er mikið skemmd, ef ekki ónýt.
![]()
Auðvitað gott að enginn slasaðist, en ég bendi á að þeir hefðu getað drepið saklausa vegfarandur með þessum hálfvitaskap sínum.
Vonanadi látið þið ykkur þetta að kenningu verða.
Það eru einmitt svona bílstjórar sem hafa ekkert út í umferðina að gera og það er ekki beint traustvekjandi að vita af þeim þar.
En fólk ætti ekki að vera undrandi á því að BMW-eigendur og bílaklúbbar eins og þessi hafi slæmt orð á sér þegar innan þeirra eru sauðir sem bera enga virðingu fyrir lögum og reglum.
Spurning hvort stjórnendur ættu að gera eitthvað varðandi þá notendur sem vitað er að hafi stundað eða stunda glanna- og ofsaakstur út í umferðinni. Það myndi kannski auka virðingu klúbba eins og þessa að losna við sauðina.
En sem betur fer slasaðist (eða dó) enginn í þetta skiptið, en það er ekki víst að heppninn verði með í för næst.
Vonandi að þeir læri eitthvað á þessu.
Users browsing this forum: Google [Bot] and 19 guests