Vinur minn var með Nissan Almeru 2004/5 árgerð man ekki nákvæmlega. Eftir endurútreikninganna þá stóð lán bílsins í 1.200.þús ca... Bíllinn sjálfur var metinn á 650þús ca, hann var ekki í 100% lagi svo það sé tekið framm. Allavega eftir marga mánuði á söluskrá þá finnur hann kaupanda í gengum bland.is eða einhverja síðu og sá kemur og skoðar og bíður svo 550þús í bílinn, sem hann ákvað að taka. Hann fer í lýsingu og greiðir upp mismuninn af láninu sem var nánast sama upphæð og hann fékk fyrir bílinn, lánið var s.s í 1.100þús ca. Nema það sem mér finnst vera skrítið er að eins og við vorum búnir að tala um þá bjóst hann við því að eitthvað af þessum mismun myndi lækka,, vextir feldir af afborgunum og þessháttar.. En það var ekkert gert ! þau sögðu bara við hann að hann yrði að borga allan mismuninn frá þessum 550þús krónum sem hann fékk fyrir bílinn, sem var einhvað rúmlega 500þús krónur ! Ég hélt að þegar menn greiða upp samning þá fellur eitthvað af vöxtum niður ? + jafnvel einhver liðlegheit að hálfu fyrirtækisins með að fella niður einhverja prósentu af þessu eða lækka þetta eitthvað smá ? Allavega veit ég að önnur svona fyrirtæki hafa gert það. Hvað segja menn ? Veit einhver hvernig þetta virkar þarna hjá þeim ? Eða er það bara happa glappa eftir á hvernig skapi starfsmaður þessa lélaga fyrirtækis er í þann daginn!
Með von um ágætis svör..
